Fréttatilkynning frá Grasagarði Reykjavíkur
Í Grasagarðinum vaxa margar undurfagrar blágresistegundir. Miðvikudagskvöldið 5. júlí verða þær skoðaðar, fjallað um fjölbreytileika þeirra og ræktun í heimilisgörðum. Jóhanna Þormar garðyrkjufræðingur hjá Grasagarðinum leiðir gönguna. Fræðslan hefst við aðalinngang Grasagarðs Reykjavíkur kl. 19:30, aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Þormar í netfanginu johanna.thormar@reykjavik.is og í síma 698-8480.
Myndin er af kínablágresi (Geranium farreri)