Þrír hópar samfélagsins þurfa við ákveðnar aðstæður vottun svokallaðra ,,valinkunnra manna“. Það eru glæpamenn sem sækja um uppreist æru sinnar, innflytjendur sem sækja um ríkisborgararétt og hundar.
Í samfélagsumræðu undanfarinna daga hafa ýmsir velt fyrir sér hugmyndinni um hinn valinkunna mann. Af því tilefni rifjum við upp stuttan leikþátt sem Stefán Jón Hafstein birti fyrst á Facebook árið 2012. Færslan er birt hér með leyfi höfundar.
Leikþáttur Stefáns Jóns Hafstein
Sviðið: Stefán Jón gengur inn í þjónustuver Reykjavíkurborgar við Höfðatorg, kona situr á bás merktur þjónustufulltrúi. Stefán Jón fær umsóknareyðublað fyrir undanþágu við banni við hundahaldi (einmitt, hundahald er bannað en þarf að sækja um undanþágu með skilyrðum). Á blaðinu stendur að enginn fái undanþágu nema með stuðningsyfirlýsingu tveggja ,,valinkunnra manna“.
Stefán Jón: Er þetta í alvöru?
Þjónustufulltrúi: Já, þú færð bara einhvern, systur þína eða einhvern.
Stefán Jón: Hún er með hundafóbíu.
Þjónustufulltrúi: Þá bara einhvern.
Stefán Jón: Hvað er valinkunnur maður?
Þjónustufulltrúi: Þetta er eitthvað gamalt. Þeir vildu halda þessu inni.
Stefán Jón: Hverjir eru þeir?
Þjónustufulltrúi: Það veit enginn hverjir þeir eru.
Stefán Jón: Og þeir vilja þetta?
Þjónustufulltrúi: Já þeir hafa ekki viljað sleppa þessu.
Stefán Jón: Hverjir eru þeir er maður vill spyrja?
Þjónstufulltrúi: Þeir láta ekki spyrja.
Stefán Jón: Eru þeir ósýnilegir?
Þjónustufulltrúi: Já, og þeir láta ekki ná í sig.
Stefán Jón: Svo þeir láta ekki ná í sig ef ég vil tala við þá?
Þjónustufulltrúi: Nei, þeir láta engan ná í sig.
Stefán Jón: Og þeir eru hvergi?
Þjónustufulltrúi: Nei. Þeir eru hvergi.
Stefán Jón: En þeir vilja stuðningsáskrift tveggja valinkunnra manna við hundinn minn?
Þjónustufulltrúi: Já, þeir eru bara svona.
Stefán Jón: Til dæmis Jón Gnarr og Dag B. Eggertsson?
Þjónustufulltrúi: Já, þeir vilja bara einhvern.
Stefán Jón: Takk, ég reyni þá um helgina.
Þjónustufulltrúi: Góða helgi.
Stefán Jón gengur út með umsóknareyðublað um undanþágu við banni við hundahaldi.
(Tjaldið).