Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Berar axlir bannaðar

$
0
0

Berar axlir eru bannaðar í Bandaríska þinginu, samkvæmt hertum reglum repúblíkanans Paul Ryan, forseta þingsins. Þetta kemur fram í húmorískum pistli Hadley Freeman í Guardian þar sem greint er frá því að tveimur blaðakonum hafi verið vísað á dyr þar sem þær stóðust ekki siðgæðiskröfur öryggisvarða sem hefur verið gert að herða eftirlit með ögrandi klæðaburði. Báðar voru í ermalausum kjólum. Freeman veltir því fyrir sér hvort fylgislið Trumps forseta sé farið að sækja innblástur í kvikmyndaseríuna Handmaids Tale, sem byggð er á samnefndri bók Margrétar Atwood. Sagan er framtíðarsaga um bandarískt samfélag þar sem talibanískur, kristilegur öfgahópur hefur framið valdarán, afnumið allt kvenfrelsi og innleitt stangar siðferðisreglur sem fylgt er eftir með refsiofstæki sem minnir á sharía-lög.

Auglýsing

Pistlahöfundurinn Freeman hæðist að þessu ofstæki Repúblikana sem birtist nú í þinginu og bendir á að ermalausir kjólar séu nú uppáhaldsdress Ivönku Trump og Kellyanne Conway, talskonu forsetans, og siðleysi hálfberra axla þeirra sé ekki talið standa trúverðugleika og virðingu þeirra fyrir þrifum. Þessi ótti við berar axlir sé annars í anda þess viðhorfs að konur hljóti að vera stjórnlaus tálkvendi sem laði saklausa karlmenn til fylgilags með axlarbragði.

Miklir hitar eru í Washington sem hefur ýtt undir siðleysi kvenna sem eiga erindi í þinghúsið enda ólíkt þægilegra að klæðast léttum sumarkjól en þykku vaðmáli fram á handabök.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283