Fréttatilkynning frá Kexland
KEX Hostel og KEXP kynna með stolti KEXPort 2017
15 TÓNLEIKAR Í PORTINU FYRIR AFTAN KEX Hostel 14. Og 15. júlí
Tónleikahátíðin KEXPort verður haldin í sjötta skiptið í portinu fyrir aftan KEX Hostel föstudaginn 14. júlí og laugardaginn 15. júlí næstkomandi. KEXPort hefur vanalega staðið yfir í einn dag (frá hádegi til miðnættis) og í ár verður hún haldin í tvo daga og er dagskráin vegleg í ár.
KEXPort er haldin í samvinnu við og til heiðurs útvarpsstöðvarinnar KEXP í Seattle. Jim Beckmann sem er yfir myndbandsgerðadeild KEXP kemur til landsins til þess að vera viðstaddur hátíðina. Jim hefur komið árlega til Íslands frá árinu 2009 til þess að fylgjast með ferskustu straumunum í íslensku tónlistarlífi og til að taka upp myndbönd með íslenskri tónlist sem skipta nú hundruðum. KEXP munu senda út frá Iceland Airwaves í ár.
Útvarpsstöðin hefur unnið óeigingjarnt starf til kynningar á íslenskri tónlist og menningu í Bandaríkjunum og víðar í heiminum.
Hátíðin er haldin í portinu fyrir aftan Kex Hostel og eru þeir fríkeypis og opnir almenningi á meðan rými leyfir. Mikill stemmning er fyrir KEXPort líkt í ár og er óhætt að segja að segja að fjölbreytni tónlistaratriða sé með besta móti.
Myndbandstöku af tónleikunum í ár verður streymt beint í gegnum Facebook síðu KEX Hostel og verður streyminu sömuleiðis dreift í gegnum KEXP.
Dagskrá tónlistaratriða er efirfarandi:
Föstudagur 14. júlí
19:00 Une Misére
20:00 Dynfari
21:00 Kuldaboli
22:00 Hórmónar
23:00 HATARI
Plötusnúður: DJ Styrmir Hansson
Laugardagur 15. júlí
14:00 Sóley
15:00 Between Mountains
16:00 SiGRÚN
17:00 Daði Freyr
18:00 JFDR
19:00 aYia
20:00 Elli Grill
21:00 Vök
22:00 HRNNR & SMJÖRVI
23:00 Fufanu
Plötusnúðar: Kanilsnældur
Meðal þeirra sem hafa komið fram á KEXPort eru Grísalappalísa, DJ Flugfél og geimskip, Hjálmar, Pétur Ben, Misþyrming, Singapore Sling, Alvia, Emmsjé Gauti, Agent Fresco, Gísli Pálmi, Hórmónar, Samúel Jón Samúelsson Big Band, Kiriyama Family, Ghostigital, Low Roar, Sóley, Tilbury, Snorri Helgason, Úlfur Úlfur, Mr. Silla, Sykur, Dimma, Reykjavíkurdætur, Sometime, Kött Grá Pje, MUCK, Kippi Kanínus og Moses Hightower.
Kær kveðja / Kind regards
Benedikt Reynisson
Events / Marketing / Social Media
Tel. +354 5616060
DILL Restaurant – Hverfisgata 12 – KEX Hostel – KEX Brewing – Mikkeller & Friends Reykjavík