Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Fjarlægðin gerir fórnarlömbin falleg

$
0
0

Benjamín Julian er höfundar þessar greinar sem birtist fyrst á vefnum pistillinn.is árið 2014. Ekkert hefur dregið úr hörmungum vegna fátæktar síðan þá og ekkert útlit fyrir að dragi úr flæði flóttafólks til Vesturlanda á næstu árum. Greinin á því miður ekki síður við í dag.

Fjarlægðin gerir fórnarlömbin falleg

Einn er sá draugur sem hvílir yfir lífsglöðu heiðingjunum á Vesturlöndum, og hann er fátæktin þarna hinumegin. Á nokkurra vikna fresti skjóta fréttamenn að okkur áminningu um að enn séu svertingjarnir að drepa hvern annan, fólkið í Bangladess að klára líftóruna á saumaskap rauðra hipsterabuxna og svo voru fátæku börnin nýlega að flytja frá Afríku til Indlands, þar sem ástandið ku vera engu betra. Stundum sleppur stöku fátæklingur hingað norðurfyrir og biður um hæli af mannúðarástæðum, en því miður eru það alltaf forhertir ribbaldar og glæponar – raunverulegu fórnarlömbin í sjónvarpinu eru, einsog við vitum öll, börn með þrútnar bumbur, grátandi mæður og fótalausir fyrrverandi barnahermenn. Þessir menn sem hingað koma eru ágætlega uppihaldnir karlar á besta aldri, nákvæmlega sú manngerð sem velþekkt er að sækist í mafíur og eiturlyfjasmygl. Þeim er enda hent strax suðurfyrir fátæktarmörkin aftur, þar sem þeir eru best geymdir.

Auglýsing

 

Eina leiðin til að hjálpa sveltandi stríðsfórnarlömbum er að gefa stórum stofnunum peninga svo þær geti bjargað málunum. Ríkið, Oxfam, Rauði krossinn, í raun hver sem getur farið suðurfyrir og hjálpað að stoppa hamfarirnar í sjónvarpinu. Svona þúsundkall á mánuði er ágætt, því leigan hérna er svo há, og þúsundkall kaupir líka miklu meira þar en hér. Það er kannski ekki alltof slæmt að sleppa honum heldur, því hagfræðingar í moldríkum hugveitum fullyrða að þróunaraðstoð skekki markaðshlutföll á svæðinu, og geri í raun illt verra. Hjálparstofnanirnar hafa sennilega gleymt sér í allri góðvildinni, eða eitthvað, og svo er alveg margt hægt að gera við peninginn hérna heima líka. Kannski kaupa Fair Trade súkkulaði í dessertinn, ef hagfræðingarnir hefðu ekki fordæmt það í leiðinni. Ríkið gefur líka þúsundasta hluta landsframleiðslu í þróunaraðstoð, sem slagar hátt uppí 0,7% lágmarkið sem Sameinuðu þjóðirnar mæla með.

Þó þetta sé allt frekar flókið, og best látið kyrrt liggja, getum við styrkt neyðaraðstoð. Enginn véfengir að hún er alltaf góð og gild. Íslenska ríkið sendi í stríðinu í Afganistan nokkra menn á staðinn í stjörnuprýddum einkennisklæðum með hríðskotabyssur til að passa friðinn. Svo hjálpaði það að stoppa neyðarástandið í Írak með því að sprengja keisarahöllina og hengja keisarann þar. Þegar flóðbylgjur og fellibyljir dynja á fólkinu í sjónvarpinu standa Íslendingar flestum framar í að senda neyðaraðstoð. Eftir að sextíuþúsund manns höfðu dáið í sýrlenska borgarastríðinu póstlagði ríkið í flýti tuttugu og fimm milljónir þangað, svipað mikið og það gaf til hjúkrunarheimilisins Eirar eftir að fyrrverandi borgarstjóri keyrði það í gjaldþrot.

Þetta er vegna þess að það kostar meira að gera hluti hér en úti. Íslenska ríkið skar niður þróunaraðstoð því hér er heilbrigðiskerfið í neyð: okkur vantar æðaþrengingartæki (200 milljónir), veirurannsóknartæki (50 milljónir), segulómunartæki (200 milljónir) og margt, margt fleira. Og þá er einfaldlega ekki mikið eftir til að gefa bumbubörnunum. Þegar á heildina er litið væri kannski ágætt að biðja, en við erum löngu hætt að trúa á Guð. Í staðinn hefur rignt yfir Afríkulönd skínandi hvítum trúboðum, sem kenna þeim að biðja fyrir sjálfum sér. Afleiðing af þessu er að nú má í Úganda ekki vera hommi, því það veldur bakverkjum og smitar börnin – og Guð vill það ekki.

Kannski er þetta svona flókið. Kannski eru allir hælisleitendur glæponar og allt þróunarstarf til einskis. En kannski er þetta miklu einfaldara. Kannski langar okkur ekki að hjálpa, og við leitum allra afsakana til að sleppa því. Kannski þykir okkur vænna um hversdagsleg þægindi okkar en lifibrauð fjarlægra fátæklinga. Gæti það verið? Gæti verið að í raun séu allir þessir hælisleitendur raunverulegir flóttamenn, og gæti verið að í Íslendingum hvíli óséður rasisti sem vill bara frekar halda þeim í útlöndum? Ef svo er ekki er tími til kominn að sýna það í verki.

Fjarlægðin gerir fórnarlömb falleg. En hún afsakar ekki að gera rétt svo það minnsta sem maður kemst upp með til að hjálpa þeim.

 

Benjamín Julian 2Benjamín Julian heldur úti netsvæðinu Pistillinn.is þar sem hann skrifar um samfélagsmál, með áherslu á uppruna valdastofnana og beitingu valdheimilda.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283