Þann 11. desember, voru stofnuð á fjölmennum fundi í Iðnó samtök sem fengu nafnið Röddin – baráttusamtök fyrir réttindum utangarðsfólks.
Þar voru meðal annars samþykkt lög og kosið í stjórn. Í stjórninni eru sjö félagsmenn og þrír til vara. Stjórnarformaður var einróma kjörinn Alma Rut Lindudóttir en auk hennar eru í stjórn þau Bjarni Tryggvason, Elísabet Kristjánsdóttir, Gunnhildur Bragadóttir, Hrafnhildur Jóhannesdóttir, Laufey Bára Einarsdóttir og Þorleifur Gunnlaugsson. Varmenn eru þau, Heiða B. Heiðars, Jóna Palla og Óskar Steinar Jónsson
Samtökin eru landssamtök og tilgangur þeirra er, eins og nafnið bendir til, að berjast fyrir réttindum og vinna að málefnum utangarðsfólks. Samtökin munu leitast við að koma að og hafa mótandi áhrif á allar aðgerðir stjórnvalda sem lúta að málefnum utangarðsfólks.
Þetta verður meðal annars gert með því að efla samtakamátt þeirra sem láta sig málið varða og vinna með öðrum félagasamtökum og hópum sem hafa sömu eða svipuðuð markmiðu, sjá til þess að jafnræðisregla stjórnaskrárinnar verði virt og þeim mannréttindasáttmálum sem Ísland á aðild að sé framfylgt, efla gagnrýna og málefnalega umræðu um þjónustu við utangarðsfólk og stuðla að því að þeir sem lenda utangarðs verði búin skilyrði til að njóta hæfileika sinna.
Röddin – baráttusamtök fyrir réttindum utangarðsfólks er öllum opið. Á Facebook er grúppa þar sem þið getið fylgst með störfum samtakanna og lagt orð í belg. Það eru mörg verkefni fyrirliggjandi og það vantar alltaf fólk sem getur lagt eitthvað af mörkum.
Þeir sem vilja gerast stofnfélagar geta haft samband við Ölmu Rut Lindudóttur og sent henni tölvupóst á netfangið
almarut@internet.is