Fréttatilkynning frá verksmiðjunni á Hjalteyri
Á sýningunni Hverfing/Shapeshifting í Verksmiðjunni á Hjalteyri mætast listamenn frá Íslandi og Bandaríkjunum til þess að skapa staðbundin innsetningarverk inn í rýmið. Verksmiðjan, saga hennar og nálægð við Norður Íshafið og náttúruna þjónar hlutverki bakgrunns en einnig ramma fyrir ný verk listamannanna, sem að tengja við stef menningarlegra og náttúrulegra gilda, en einnig yfirvofandi ógnvænlegar breytingar vegna hnattrænnar hlýnunar – áhrif þeirra og ófyrirsjáanlegar afleiðingar á samfélög, umhverfi og náttúru.
Verksmiðjan á Hjalteyri hlaut viðurkenningu Eyrarrósarinnar 2016 og var nýlega nefnd sem einn af 10 áhugaverðurstu sýningarstöðum landsins í umfjöllun https://theculturetrip.com/europe/iceland/articles/10-of-icelands-best-art-galleries/. Hún var reist af miklum stórhug á fyrri hluta síðustu aldar. Í dag myndar hún svipmikinn bakgrunn við stórar og kraftmiklar innsetningar listamanna.
Verksmiðjan á Hjalteyri / 03.08 – 03.09 2017 / Neðst á Hjalteyri við Eyjafjörð / 601 Akureyri http://verksmidjanhjalteyri.com/verksmiðjan.html
Opnun fimmtudaginn 3. ágúst kl. 17 / Opið til og með 03.09. þrið-sun. 14-17
Sýningarstjóri/Curator: Pari Stave, listfræðingur og sýningarstjóri í Metropolitan listasafninu í New York.
Koma listafólksins og sýningin eru styrkt af Uppbyggingarsjóði, Myndlistarsjóði, Hörgársveit og Ásprenti.
Nánari upplýsingar veitir Gústav Geir Bollasoní verksmidjan.hjalteyri@gmail.com og í síma 6927450
Verksmiðjan á Hjalteyri
Neðst á Hjalteyri við Eyjafjörð
http://verksmidjanhjalteyri.com/verksmiðjan.html
https://www.facebook.com/pages/Verksmi%C3%B0jan-%C3%A1-Hjalteyri/92671772828