Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Plönturnar í Miðgarði Tolkiens

$
0
0

Fréttatilkynning frá Grasagarði Reykjavíkur

 

Hvernig var umhorfs í garði Bilbó Bagga? Eru entar í Grasagarði Reykjavíkur?

Miðvikudaginn 26. júlí kl. 20 verður fræðsluganga í Grasagarði Reykjavíkur þar sem nokkrar þeirra plantna sem koma fyrir í Hringadróttinssögu og Hobbit J.R.R. Tolkiens og vaxa í garðinum verða skoðaðar.

Í göngunni verður m.a. litið við í Skíri, heimahögum hobbitanna, og í dularfullum skógum Miðgarðs.

 

Björk Þorleifsdóttir verkefnastjóri fræðslu og miðlunar hjá Grasagarðinum leiðir gönguna sem hefst við aðalinngang Grasagarðsins við Laugatungu kl. 20.

 

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir!

Nánari upplýsingar veitir undirrituð í síma 693-2307 eða í netfanginu bjork.thorleifsdottir@reykjavik.is

 

Myndin sýnir gráelri (Alnus incana).

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283