Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Sádí-Arabía hindrar neyðaraðstoð til Jemen

$
0
0

Sádí-Arabar hindra Sameinuðu þjóðirnar (Sþ) í að koma hjálpargögnum til Jemen með því að banna eldsneytisflutninga til landsins fyrir alþjóðasamtökin. Af þeim söukum eru flugvélar Sþ strandaðar á flugvöllum í Jemen og hafa ekki eldsneyti til flugs frá landinu. Sþ eru nánast einu samtökin sam hafa náð að koma hjálpargögnum til landsins svo að þessi hindrun hefur alvarleg áhrif.

Auglýsing

Um 10 þúsund manns hafa fallið í átökunum í Jemen og matvæla- og lyfjaskortur mun stráfella fleiri ef sulturinn sverfur enn frekar að. Í ástandinu hefur brotist út kórelufaraldur, sá versti á síðari tímum. Um 70 prósent af 27 milljónum íbúa Jemen reiða sig á einhvers konar manúðaraðstoð. Fjórtán og hálf milljón manna hefur ekki reglulegan aðgang að hreinu vatni og áætlað er að 7,3 milljónir manna séu á barmi hungurseyðar. Independent greinir frá.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283