Skemmtikrafturinn, sjónvarps- og fjöllistakonan Steiney Skúladóttir gerir ölvunarakstur að umfjöllunarefni í opinni Facbookfærslu sinni. Steiney viðurkennir að hafa keyrt bíl undir áhrifum áfengis og vill að reynsla sín verði öðrum víti til varnaðar sér í lagi núna þegar Verslunarmannahelgin nálgast:
„Ég keyrði full um daginn. Mér leið eins og ég væri edrú, tímdi ekki leigubíl og var hvort sem er að fara svo stutt. Ég komst heim vandræðalaust og fór að sofa.
Þegar ég vaknaði daginn eftir kom sjokkið. Ekki sjokkið að ég hefði getað klesst á og slasað sjálfa mig heldur sjokkið að ég hefði getað keyrt á aðra manneskju. Að ef einhver hefði labbað út á götuna hefði viðbragðstíminn minn verið of langur.
Mig langar að segja frá þessu núna því að um helgina munu margir fá þessa hugmynd í kollinn að þau séu nú ekki búin að drekka það mikið og geti alveg keyrt. En raunin er að þetta er ekki bara um að passa sig, þetta er aðallega um að stofna ekki lífi annars fólks í hættu.
Innskot: Það má koma fram að ég var ekki sótölvuð og ég veit ekki hvað hefði mælst í mér en bottom line það á aldrei að taka sénsinn“