Donald Trump, Bandaríkjaforseti, bað Peña Nieto, forseta Mexíkó, um að standa ekki á því opinberlega að Mexíkó myndi ekki borga fyrir að reisa múr á landamærum ríkjanna. Þetta kemur fram í uppskrift af símtali forsetanna sem lekið var til dagblaðsins Washington Post og birt var í gær. Trump rak kosningabaráttu sína meðal á því loforði að reisa vegg á landamærum ríkjanna og láta Mexíkó borga fyrir hann. Í símtalinu viðurkenndi Trump að af því yrði aldrei, en hann áréttaði við Peña Nieto að hann mætti hins vegar ekki segja það opinberlega.
Hugmyndin um landamæravegginn hefur sett Trump í klemmu sem hann reynir að losa sig úr samkvæmt þessu símtali. „Staðreyndin er sú að við erum báðir í dálitlum pólitískum hnút því ég verð að láta Mexíkó borga fyrir vegginn. Ég verð það“, sagði Trump í símtalinu. Síðar vísar hann í opinbera þverneitun Mexíkóforseta á því að greiða fyrir vegginn; „Þú mátt ekki fullyrða þetta í fjölmiðlum. Þeir munu hengja sig í þetta og ég get ekki búið við það. Þú getur ekki sagt þetta í fjölmiðlum því ég get ekki samið undir þeim kringumstæðum“.
Við lestur samtalsins verður ekki annað lesið en Trump hafi gengið svo langt að hóta að skera á öll tengsl við Peña Nieto ef ekki væri fundin leið sem honum væri hugnanlegt og léti að minnsta kosti líta út fyrir að hann stæði við kröfuna um að Mexíkó borgaði fyrir vegginn.
Samkæmt frétt í Guardian eru menn ekki á eitt sáttir um hvernig símtalið komi út fyrir Mexíkóforseta. Sumir telja hann niðurlægðan með því að Trump tali til hans eins og vinnuhjú en aðrir telja að þetta sýni valdastyrk forsetans úr því Trump þurfi að biðja hann um að taka þátt í hráskinnaleik til að bjarga Bandaríkjaforseta úr klemmu. Nokkur dæmi eru um það á síðustu mánuðum að Peña Nieto hafi komið sér undan því að andæfa Trump beint á opinberum vettvangi, þegar sá síðarnefndi hefur klifað á því að Mexíkó greiði fyrir landamæravegginn.