Helsta hryðjuverkaríki heimsins er Sádí-Arabía. Ríkistrú landsins, Wahhabisminn, er sú öfgatúlkun Islams sem hættulegustu hryðjuverkasamtök heims byggja á. Flestir fylgjendur Islams í heiminum hafna þessari öfgatrú og kalla hana janfvel sataníska.
ISIS og al-Kæda sækir ekki bara hugmyndagrunn til Sádí-Arabíu því fjármagn flæðir þaðan til þessara glæpasamtaka. Það liggur fyrir staðfest að fjármagn sem veitt er út fyrir landsteinanna undir yfirskyni fræðslu og trúboðsstarfs hefur ratað til hryðjuverkahópa. Fram hafa komið leyniskjöl sem staðfesta að Bandarískum stjórnvöldum hefur verið fullkunnugt um að helsta fjármögnun hryðjuverka kemur frá ríkinu.
Sádí-Arabía er því vagga hættulegustu hryðjuverkamanna heims í dag og hefur verið lengi. Ekki má gleyma því að langflestir þeirra sem skipulögðu og framkvæmdu hryðjuverkin 11. september voru Sádí-Arabar.
Mannréttindi eru fótum troðin í landinu. Sharíalögum er miskunarlaust beitt, afhausun, grýtingar, krossfestingar og hýðingar eru daglegt brauð. Ekki minnsta andóf er liðið og hefur ný kynslóð hert tökin eftir að Abdullah bin Abdulaziz Al Saud konungur lést 2015.
Þessi staða sem er öllum ljós hefur ekki hindrað mesta herveldi heimsins, Bandaríkin, í að halda góðum tegslum vði ríkið og styðja það hernaðarlega með mynduglegum hætti. Donald Trump, Bandaríkjaforseti fór í sína fyrstu opinberu heimsókn til landsins, steig sverðdans með afhausurum í konungsfjölskyldunni og lofaði landinu hergagnasölusamningi upp á 100 milljarða bandaríkjadala. Breska íhaldsstjórnin hefur ekki látið sitt eftir liggja og selur hergögn til landsins í miklum móð og sýnir valdastétt landsins ofurvirðingu.
Á meðan þessi kjarnaríki Atlantshafsbandalagsins styðja ötullega vði vöggu hryðjuverka í heiminum verður allt tal um baráttu gegn hryðjuverkum innihaldslaust hjal.
Sádí-Arabía er einn af verstu mannréttindabrjótum heimsins. Það hefur ekki hindrað ríkið í að taka sæti í mannréttndaráði Sameinuðu þjóðanna. Kvenréttindi eru fótum troðin í landinu en þrátt fyrir það var fulltrúi landsins kjörinn í leynilegri kosninu í sérstakt kvennréttindaráð Sameinuðu þjóðanna í vor. Að veita Sádí-Arabíu stöðu innan mannréttindakerfis Sameinuðu þjóðanna er hjákátlegt og niðrandi. Landið er t.a.m. eitt af fáum í heiminum sem hefur ekki samþykkt Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna.
Þeir sem vilja fræðast um ástandið í landinu geta horft á heimildarmyndina Saudi Arabia uncovered sem frumsýnd var á liðnu ári og er m.a. aðgengileg á Netflix.
Undanfarið hefur valdastéttin beint spjótum sínum að grannríkinu Katar og leitt bandalag ríka í viðskiptabanni á ríkið. Þetta er gert undir því yfirskyni að Katar fjármagni hryðjuverkastarfsemi, sem það gerir sannarlega, en ásakanir um slíkt frá ríki sem gerir slíkt hið sama eru lítt trúverðugar. Þetta er valdabrölt og tilraun til þess að kúga auðuga yfirstétt Katara til hlýðni.
Ein óforskammaðasta krafan sem Sádar gera gegn Katar er að landið loki sjónvarpsstöðinni Al-Jazzera sem hefur sýnt a.m.k. vísi að sjálfstæði og fagmennsku í fréttaflutningi.
Sádar hafa nýverið fengið stuðning í baráttu gegn Al-Jazeera frá stjórnvöldum í Ísrael sem fyrir nokkrum dögum tóku skref í þá átt að banna sjónvarpsstöðina í landinu og svipta blaðamenn hennar réttindum til að starfa í Ísrael.