Ísland er í 10. sæti í heiminum í mati samtakana Blaðamenn án landamæra (Reporters Without Borders) á frelsi fjölmiðla og hefur færst upp um níu sæti frá síðasta ári. Samtökin hafa lagt mat á frelsi fjölmiðla í allmörg ár og gefa hverju landi einkunn. Ekki er að finna ítarlega greiningu á netinu um þær forsendur sem liggja að baki matinu en í stuttri greinagerð er talsvert gert úr metnaðarfullri þingsályktunartillögu sem samþykkt var 2010 um að gera Ísland að forysturíki m.a. í vernd uppljóstrara, gagnsæis, tjáningafrelsis og fjölmiðlafrelsis. Eins er greint frá því að staðan hafi versnað töluvert frá árinu 2012 vegna þess að súrnað hafi yfir samskiptum stjórnmála og fjölmiðla.
Ekki er tekið beint fram í greiningunni að þetta stökk úr 19. sæti í 10. sé því að þakka að létt hafi á þessu stirða sambandi.
Í efstu sætum á lista samtakana eru norrænu nágrannaríki Íslands. Noregur, Svíþjóð, Finnland og Danmörk eru í fyrsta til fjórða sæti. Holland er í fimmta, Kosta Ríka í sjötta, Sviss í sjöunda, Jamaika í áttunda, Belgía í níunda og Ísland í tíunda sæti.