Katalónska stjórnin hefur fyrirskipað þriggja daga sorg vegna hryðjuverkanna í Barcelona í dag. Vöruflutningabíl var í dag ekið inn í mannhafið á Römblunni, frægustu og fjölförnustu göngugötu borgarinnar með skelfilegum afleiðingum. Talið er að 13 manns séu látnir og yfir 80 manns slasaðir. Hið svokallaða ríki íslam hefur lýst ábyrgð á hryðjuverkunum.
↧