Eiríkur brjóstahrellir betur þekktur sem EIR hefur tjáð þá skoðun sína að saksóknarar megi vera eins frjálslega klæddir og þeir vilja. Þar erum við Eiríkur algerlega ósammála.
Fólk sem vinnur embættisstörf þar sem hlutleysis er krafist á að gæta þess í hvívetna að persóna þeirra verði sem ósýnilegust. Ósjaldan eru góðir embættismenn út á við fölleit grámenni sem fáir vita hvaða menn hafa að geyma. Lögmenn sem starfa innan dómsala hafa verið ávíttir fyrir að bera ekki hálstau þar sem klæðaburður þeirra á að undirstrika virðingu fyrir dómstólum og skjólstæðingum þeirra.
Saksóknari klæðist hempu til að verða hluti af þeirri stofnun sem hann tilheyrir og starfar fyrir. Hempan beinlínis táknar hlutleysi og á að afpersónugera þann einstakling sem henni klæðist. Gamaldags kannski en er það ekki einmitt nauðsynlegt í starfi saksóknara?
Embættismenn sem klæðast flegnum stuttum kjólum eða nærbol og stuttbuxum undir flaxandi hempunni draga óneitanlega athyglina frá störfum sem þau gegna og að þeim sjálfum. Það segir sig sjálft.
Saksóknarinn Kolbrún Benediktsdóttir gaf sér ráðrúm í nokkurra mínútna pásu í sjálfum réttarhöldunum til að gantast með óvænta ‘aðalpersónu’ réttarhaldanna – hana sjálfa – við vinkonu sína á Facebookþræði og m.a leiðrétta að hún hafi ekki klæðst bol heldur kjól og meira að segja dálítið stuttum og lét með fylgja brosandi smápatta. Var það virkilega við þetta sem hugur hennar dvaldi? Athygli sem greinarstúfur Eiríks beindi að brjóstum hennar? Brjóstaskoruna sem konur landsins kepptust við að sýna í tilefni af þeirri kvenhatandi og ósanngjörnu gagnrýni sem þær töldu Kolbrúnu hafa orðið fyrir.
Kolbrún, vertu starfi þínu vaxin þrátt fyrir að einhverjar konur landsins gangi af göflunum.
Kolbrún missir sjónar á ábyrgð sinni í viðkvæmasta sakamáli vorra daga, uppveðruð vegna nýfenginnar frægðar brjóstaskoru sinnar og deilir einnig á Facebook ljósmynd af sér með texta á þá leið að brjóstin á henni séu á leið til Finnlands.
Who cares? Eru þau í embættiserindum?
Þjóðin hefur nú um stundir aðeins áhuga á því að þetta hræðilega mál fái eðlilega málsmeðferð í höndum verðugra embættismanna og verði hlutaðeigendum ekki sársaukafyllra en orðið er. Hér er ekki staður eða stund fyrir senuþjófa eða skrípalæti.