Sigmundur Davíð og Sveinbjörg Birna hafa í dag kallað eftir því að stjórnmálamenn og aðrir stefnumótandi aðilar þori að ræða úrlausnir á mikilvægum samfélagsmálum, eins og td. málefnum flóttafólks og hælisleitenda, annars muni þeir „eftirláta öfgamönnum umræðuna og lausnirnar.“
Ég er sammála því að algjör skortur er á stefnumótun í málefnum fólks á flótta og umgjörðin og kerfið sem heldur utan um þau mál er ónýtt. Það kemur verst niður á þeim sem hingað koma í leit að skjóli og vernd frá stríði og átökum og því er mikilvægt að bregðast við því sem fyrst.
Mig langar hins vegar að benda á að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur setið á Alþingi frá árinu 2009. Hann er fyrrverandi forsætisráðherra Íslands og hann var líka um tíma dómsmálaráðherra. Hann er fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins. Ég á erfitt með að finna marga einstaklinga sem hafa verið og eru enn í stöðu til þess að grípa til aðgerða. Það sama á við um fyrrverandi flokssystur hans Sveinbjörgu Birnu.
Það er rétt hjá Sigmundi Davíð að það hafa aldrei verið fleiri á flótta í heiminum en nú. Þó einungis örlítið brot af þeim fjölda sé í Evrópu, tala nú ekki um á Íslandi, þá er alls ekki verið að taka nógu vel á móti þeim sem hingað koma og sækja um vernd og við erum að senda alltof hátt hlutfall þeirra aftur á flótta á meðan við ættum að vera að veita miklu fleira fólki vernd hér á landi.
Ég skora á Sigmund og Sveinbjörgu að hætta að nota villandi og oft á tíðum hættulegan málflutning til þess að krækja í stuðning þjóðernissinna og útlendingahatara og koma af stað stefnumótun í málefnum fólks á flótta. Þið eruð í stöðu til þess. Ef þetta útspil ykkar er ekki enn ein tilraunin til þess að ala á fordómum og sundrungu í samfélaginu og þið viljið raunverulega ræða lausnir og stefnumótun í málefnum flóttafólks, sem margir eru að velta fyrir sér, og það felur td. ekki í sér aðskilnaðarstefnu, lofa ég því að fjölmargir eru til í að slást í hópinn. Ég skal meira að segja vera með.