Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Taktu betri selfies

$
0
0

„Selfies“ eða sjálfsmyndir eru aðalmálið. Við viljum sýna augnablikið og deila því með vinum okkar á Facebook. Hápunktur sjálfsmyndana nálgast óðum, jólin og áramótin þegar við stillum okkur upp í besta skrúði og sendum áleiðis skilaboð um gleði og ánægjulegar upplifanir. Fæstir senda af sér myndir liggjandi í götunni með rifnar sokkabuxur og meikið út um allt eða hvað?

Til að ná tökum á sjálfsmyndinni og geta tekið betri myndir með smartsímanum/paddinum, sítengdu myndavélinni eða því tæki, sem er okkar uppáhalds hverju sinni er fínt að hafa nokkur einföld grundvallar atriði í huga. Árangurinn lætur ekki á sér standa og þú verður meistari sjálfsmyndanna á nokkrum augnablikum.

1. æfðu þig og taktu margar myndir hverju sinni
Það er ekkert að því að taka fullt af sjálfsmyndum, hver ætti svosem að vita af þeim sem eru ekki flottar?
Skoðaðu hvernig þær koma út og hvernig þú kemur best út á hverri mynd.
Þegar augnablikin svo mæta, taktu margar myndir ekki bara eina, þá hefurðu úr nógu að velja til að hlaða upp.

2. notaðu ljósið
Stilltu græjuna þína á að nota ekki flash. Útréttur handleggur, sem heldur á símanum er ekki nógu langur til að gefa flashblossanum góða raun og þú lúkkar ekki vel. Það þarf meiri fjarlægð til. Skoðaðu frekar hvort ekki sé upplýst jólatré, lampi, gluggi, eða eitthvað annað sem lýsir eða gefur ljós í nágrenninu og snúðu andlitinu þangað. Vertu eins nálægt ljósinu og hægt er til að fá fallega birtu í andlitið.

3. kíktu á bakgrunninn
Ekki stilla þér með bakið upp að glugga eða snúa bakinu í skært ljós. Það er uppskrift á vonlausa mynd. Sama gildir ef bakgrunnurinn er fylltur allskyns drasli eða óheppilegum uppákomum. Rólegur, einfaldur bakgrunnur gefur besta raun.

4. haltu myndavélinni stöðugri
Ætti að segja sig sjálft, en þegar mikið er undir að ná augnablikinu með þig sem miðju alheimsins, getur verið erfitt að halda stöðugleikanum. Flestar af þeim græjum sem við notum eru með sjálfvirkum fókus. Það þýðir að græjan þarf augnablik í kyrrstöðu til að ná skerpu. En svo máttu líka muna að smella á sjálfa þig á snertiskjánum til að taka fókus áður en þú smellir af.

5. skoðaðu myndina áður en þú smellir af
Það tekur augnablik að skoða hvort sjálfsmyndin sé í lagi og gefur svo miklu betri raun. Flestir símar eru í dag þannig útbúnir að hægt er að sjá sjálfan sig á skjánum áður en myndin er tekin og því þarf ekki að framkvæma neitt í blindni. Taktu flottar selfies, sem gefa góða mynd af þér og þínum upplifunum.

6. settu þig í stellingar
Nýttu æfingatímann þinn til að sjá hvernig þú tekur þig best út og nýttu það á ógleymanlegum augnablikum lífsins. Finndu fallega vanga- og augnsvipinn þinn. Til dæmis er ekki fallegt að taka undir hökuna á flestum konum. Svo máttu líka gjarna geifla andlitið þegar það á við :) því það er ekkert að því að kreista brosið fram hjá bæði þér og þeim sem njóta flottu sjálfsmyndarinnar þinnar.

Þetta er jú þitt líf!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283