Nú um helgina mun loftsteinadrífan Geminítar ná hámarki og hafa margir haft veður af þessari flottu jólaljósasýningu.
Milli 6. og 18. desember á ári hverju fer Jörðin á leið sinni kringum sólina í gegnum slóð smástirnisins 3200 Phaeton og þá fáum við, ef Veðurstofan leyfir, að sjá ótrúlega fallega loftsteinadrífu sem kallast Geminítar. Í byrjun sést einn og einn loftsteinn en þeim fjölgar svo dag frá degi þar til dírfan nær hámarki 13.-14. desember sem var í gær og í dag! Þá geta þolinmóðir séð allt frá 50-100 loftsteina á klukkustund en svo fækkar þeim jafnt og þétt. Geminítar heita svo því þeir eru kenndir við stjörnumerkið Tvíburana (Gemini) og til að sjá loftsteinana horfum við í átt til Tvíburanna.
Auðvelt er að finna Tvíburana á heiðskýrum næturhimni, þeir eru skammt frá Júpiter og útfrá höfðum þeirra, stjarnanna Castors og Pollux, birtast lofsteinarnir. Til að auðvelda sér leitina er hægt að fara á stjörnufræðivefinn þar sem má finna stjörnukort mánaðarins sem hægt er að prenta út, sjá hér. Einnig er hægt að ná í ókeypis stjörnukortaforrit fyrir síma, t.d. Star Chart fyrir iphone eða Google SkyMap fyrir android síma. Stellarium forritið er líka alger snilld og fæst ókeypis íslensku fyrir pc og mac hérna: en það er líka hægt að ná í það á ensku fyrir ipad.
Fyrir þá sem hugnast loftsteinakósíkvöld þá er ekkert annað að gera en að koma sér í hlýju fötin, taka með sér gott nesti og finna einhvern fallegan dimman stað, helst utan ljósmengunar, og njóta. Fyrir þá sem ekki nenna langt út fyrir borgarmörkin er Seltjarnarnesið t.d. prýðilegur staður. Það er vel hægt að sitja inni í bíl og horfa upp í himininn þaðan, bara muna að hafa ljósin slökkt. Hápunktur þessarar loftsteinadrífu er í kvöld laugardagskvöldið
Una Björk Kjerulf