Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Skúmaskot opnar

$
0
0

Í bakhúsinu á Laugavegi 23 er sköpunargleðinni gefinn laus taumur en þar opna í dag  fimmtudaginn 8. maí, níu listamenn og hönnuðir aðstöðu þar sem þeir sýna og bjóða verk sín til sölu.

stein9

Fyrir innan gyllta hurð, inn af litlu porti, kúrir bjart og fallegt rými sem fengið hefur nafnið Skúmaskot.

skumaskot2-2

Í Skúmaskoti fást ljósskúlptúrar, pappírsljóð, barnaföt, handlitaðir kjólar, postulín, perluverk, silkislár, málverk, bróderí, bækur, skottur og skart. Nýjar vörur berast oft í viku og listamennirnir skiptast á að vera á staðnum til að taka á móti gestum.

stein10

Skúmaskot lætur lítið fyrir sér fara, frá Laugavegi séð og vegfarendur þurfa að hafa augun opin þegar þeir nálgast nr.23, litast um eftir flögrandi gullskrauti, gylltri hurð og auðvitað nafninu ,,Skúmaskot“.

stein7

Skúmaskoti standa: Elín Haraldsdóttir, Hanna Hlíf, Heiða Eiríksdóttir, Herborg Eðvaldsdóttir, íris Ólöf Sigurjónsdóttir, María Vals / RimmBamm, Rán Flygenring, Þóra Björk Schram og Sæunn Þorsteinsdóttir.

stein8

Skúmaskot er opið frá þriðjudegi til laugardags, kl.12-18.

Frekari upplýsingar má finna á facebook

 

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283