Elin Ersson, sænskur háskólanemi kom á þriðjudag í veg fyrir brottvísun manns frá Svíþjóð til Afganistan, með því að kaupa miða með sama farþegaflugi og nota átti til brottvísunarinnar en neita að setjast niður þar til maðurinn hefði verið færður frá borði. Flugstjóri má ekki taka á loft fyrr en allir farþegar sitja í sætum sínum.
Maðurinn er 52 ára gamall, frá Afganistan. Flugleiðin lá frá Gautaborg til Istanbúl, þaðan sem maðurinn hefði verið færður um borð í flug til Afganistan, samkvæmt áætlun yfirvalda.
Farþegar klöppuðu Ersson lof í lófa
Áður en Ersson steig um borð í flugvélina tók hún þátt í mótmælum með 25 öðrum aðgerðasinnum.
Ersson streymdi myndbandi frá aðgerðinni í beinni útsendingu á Facebook og fylgdist þegar hæst stóð um hálf milljón manna með. Sólarhring síðar, á miðvikudagsmorgun, höfðu um tvær milljónir séð upptökuna. Útsendingin stóð í um 14 mínútur. Ersson segir í upptökunni að maðurinn yrði að líkindum drepinn næði brottvísunin fram að ganga.
„Ég vil ekki að maður láti lífið bara vegna þess að þið viljið ekki missa af fluginu ykkar,“ útskýrði hún fyrir farþegum. „Ég sest ekki niður fyrr en manneskjan er farin úr flugvélinni.“ Þrátt fyrir mótbárur áhafnar og sumra á meðal farþega – einn farþegi, sagður frá Englandi, reyndi að taka af henni símann með valdi – hafði Ersson að lokum betur og klöppuðu farþegar henni lof í lófa þegar brottvísun mannsins var frestað.
Á yfir höfði sér sektir eða fangelsi
Ersson á yfir höfði sér sektir og allt að hálfs árs fangelsi vegna aðgerðarinnar, að sögn yfirvalda. Þá hafa sænsk stjórnvöld tilkynnt að manninum verði eftir sem áður brottvísað, með öðru flugi.
Jórunn Edda Helgadóttir og Ragnheiður Freyja Kristínardóttir efndu til hliðstæðrar aðgerðar á Keflavíkurflugvelli, til bjargar Eze Okafor, árið 2016. Þær voru handteknar um borð í vélinni og héldu yfirvöld brottvísun Okafor til streitu.