Konný Björk segir í Facebook-færslu á þriðjudag sögu af viðureign sinni við Tryggingastofnun ríkisins (TR), eftir heilaaðgerð sem hún undirgekkst síðastliðinn febrúar. Konný var að sögn stödd í sálfræðitíma þegar rofnaði æð í höfði hennar, án fyrirvara, og birtist í óbærilegum þrýstingi, höfuðkvölum og uppköstum svo hún féll í gólf.
Reynt er að stöðva blæðinguna með þræðingu samdægurs, en vegna blóðtappa sem myndast þurfti, segir Konný, að hætta við aðgerðina. Í annarri aðgerð er þá höfuðkúpa sjúklingsins opnuð með sög, blóðtappinn stöðvaður og lífi hennar bjargað.
Eftir nokkurra vikna sjúkrahúslegu, fyrst á gjörgæslu en síðar á almennri deild, var Konný að mestu rúmliggjandi fram á vor. Skurðinum, „eyrna á milli“ fylgi bólgur og verkir. Önnur eftirköst séu jafnvægistruflanir, svimi, ógleði, heyrnarleysi, máttleysi, þrekleysi, málstol, taugatruflanir, helti og tilfinningasveiflur
Þrátt fyrir það, og þrátt fyrir aðstoð þriggja aðstandenda sem allir starfa innan heilbrigðiskerfisins, segir Konný að Tryggingastofnun synji henni um tímabundnar örorkubætur og beri því við að endurhæfing hafi ekki verið fullreynd.
Læknir hefur ritað þá umsögn um stöðu sjúklingsins að endurhæfing sé „fullkomlega óraunhæf“ sem stendur. Konný segir að það virðist engu breyta um afstöðu Tryggingastofnunar, og lýsir samskiptunum sem upplifun af niðurlægingu og mannvonsku:
„Tryggingarstofnun telur að sjúklingur sem var með rofna æð í höfði, fær blóðtappa í heilann og söguð opin höfuðkúpa til að bjarga lífi sjúklings sé ekki næg ástæða til að fá tímabundnar örorkubætur“.
Nú taki við kæruferli gegn Tryggingastofnun, en á meðan á því stendur nýtur sjúklingurinn ekki bóta.
„Þessir undanförnu mánuðir hafa verið alveg nógu erfiðir þó að sjúklingur þurfi ekki að hafa fjárhagsáhyggjur í ofanálag, því fimm manna fjölskyldu munar alveg um að annar framfærsluaðilinn detti gjörsamlega út í fleiri fleiri mánuði,“ skrifar Konný.