Vörubíll valt á Vesturlandsvegi upp úr hádegi á miðvikudag, með farm af þorskhausum. Bíllinn er illa leikinn eftir veltuna og þorskhausarnir rata varla á markaði úr þessu, en bílstjórinn er sagður hafa sloppið með skrekkinn. Hann var fluttur af slysstað með þyrlu, lemstraður en lifandi og „furðanlega lítið slasaður“ að sögn sjónvarvotts.
↧