Skúli Mogensen, stofnandi, eigandi og forstjóri flugfélagsins Wow Air, flytur veglegan fjölda ferðamanna til Íslands á ári hverju. Í janúar var greint frá því að farþegafjöldi sem fyrirtækið flytur hefði rokið upp um nær 70% milli áranna 2016 og 2017, og voru 2,8 milljónir í fyrra, milli 34 áfangastaða.
Skúli sjálfur virðist aftur á móti hafa fundið afdrep fyrir sig og sína fjarri ferðamannastraumnum, en árið 2015 keypti hann jörðina Hvammsvík í Hvalfirði. Almenningur var minntur á þetta á dögunum, þegar fjölmiðlar birtu myndir frá fimmtugsafmæli Skúla, sem hann fagnaði á jörðinni.
Hvammsvík var áður í eigu Orkuveitu Reykjavíkur. Jörðin skal, samkvæmt lögum, vera opin gestum og gangandi. Skúli virðist þó vera á meðal þeirra nýju jarðeiganda á landinu sem kjósa að virða almannarétt að vettugi og láta sem heimilt sé að aftra ferðum almennings um landareignir. Árið 2016 var, samkvæmt Wikipediu, „lokað fyrir umferð almennings um Hvammsvíkurveg sem liggur að Hvammsvík og Hvammi“. Þá hefur Skúli tilkynnt að náttúrulaug sem finnst í fjöru í víkinni hafi verið lokað – og sett upp skilti til að fæla ferðamenn frá, að viðlögðu hundsbiti.
Í 18. grein laga um náttúruvernd segir:
„Mönnum er heimilt, án sérstaks leyfis landeiganda eða rétthafa, að fara gangandi, á skíðum, skautum og óvélknúnum sleðum eða á annan sambærilegan hátt um óræktað land og dveljast þar.“
Og í 29. grein sömu laga er nánar tilgreint:
„Eiganda lands eða rétthafa er óheimilt að hindra almenning í að njóta þeirra réttinda sem mælt er fyrir um í þessum kafla. Sá sem verður var við hindranir sem hann telur brjóta gegn þessum réttindum getur krafist úrlausnar Umhverfisstofnunar um þær.“
Þetta heitir almannaréttur og er ævaforn. Þó að Skúli hafi þannig ekki, frekar en aðrir jarðeigendur, nokkurn rétt á að meina gangandi vegfarendum að fara um landareign sína, á þar að vild, tína ber og jafnvel tjalda, er sennilegt að vel valin skilti hafi nokkurn fælingarmátt og greifi íslenskrar ferðamennsku fái þannig, að minnsta kosti um sinn, nokkurn frið. Frá ferðamönnum.