Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ísraelsher undirbýr allsherjarárás á Gaza

$
0
0

Hátt settur herforingi innan Ísraelshers sagði á fimmtudagsmorgun, undir nafnleynd, að herinn væri langt á veg kominn við undirbúning „allsherjar hernaðarátaka“ á Gaza. Það yrði fjórða slíka hernaðaraðgerðin á Gaza frá árinu 2008. Nú þegar, á fimmtudag, eru viðbótarhersveitir á leið til suðurhluta Ísraels, og gera yfirvöld ráðstafanir til að rýma ísraelskar byggðir í um fjögurra kílómetra radíus frá landamærunum að Gaza. The Times of Israel og Haaretz greindu frá.

Árás á útskriftarathöfn, byggð á misskilningi

Á miðvikudagsmorgun réðst Ísraelsher á útskriftarathöfn á norðurhluta Gaza. Þeir segjast hafa beitt skothríð úr skriðdreka við árásina á útskriftarathöfnina, en heimildamenn úr röðum Palestínumanna segja árásina hafa verið framkvæmda með flygildum (drónum). Tveir létust í þeirri aðgerð, og sex særðust. Hinir látnu eru í ísraelskum miðlum sagðir hafa verið skæruliðar.

Fulltrúar Ísraelshers sögðu þessa árás, í fyrstu, vera viðbragð við skotárás sem beint hafði verið að hermönnum Ísrael. Síðar drógu þeir í land og sögðu árásina byggða á misskilningi: hermenn hefðu talið að skot sem íbúar á Gaza skutu upp í loft, í fagnaðarskyni, hefðu beinst að sér.

Sprengjuregn á Gaza

Fulltrúar Hamas lýstu því í kjölfarið yfir að Ísrael beri alla ábyrgð á stigmögnun átaka. Ísraelsk yfirvöld segja að 150 eldflaugum og sprengjum hafi í kjölfarið verið varpað á ísraelskar byggðir, frá Gaza. Af þessum skeytum er eldflaugavarnarkerfi Ísraels sagt hafa stöðvað þrjátíu á miðri leið. Sjö eru sagðir hafa slasast í árásunum en flestar sprengingar urðu á opnum svæðum, utan byggðar.

Ísraelsher brást við með aðgerðum gegn 140 skotmörkum á Gaza, aðfaranótt fimmtudags. Þrennt lést í þessum aðgerðum Ísraelshers, þrítugur karlmaður, 23 ára kona og 18 mánaða gamalt barn. Tólf særðust.

Síðustu vikur hafa fulltrúar Egyptalands og Sameinuðu þjóðanna leitt samningaviðræður um vopnahlé á milli palestínskra samtaka og Ísraelsríkis. Viðræðurnar eru nú álitnar í verulegri hættu, ef ekki farnar út um þúfur.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283