Breskt líftryggingafélag, Legal & General, gerir ráð fyrir meiri hagnaði af rekstri félagsins í ár en áætlaður var, þar sem viðskiptavinir þess lifa skemur en búist var við. Annað líftryggingafélag, Aviva, hafði þegar látið frá sér hliðstæða yfirlýsingu. Þetta kemur fram í frétt Financial Times.
Meðalævilengd hefur hækkað í Bretlandi, eins og víðast hvar, frá miðri 19. öld. Árið 1841 lifðu karlmenn í Englandi og Wales að jafnaði til fertugs og konur tveimur árum betur. Árið 2011 höfðu ævilíkur tvöfaldast frá þeim tíma: ævilíkur karlmanna voru þá komnar rétt undir áttrætt og ævilíkur kvenna vel yfir áttrætt.
Lífslíkur halda áfram að hækka, en í frétt FT um málið kemur fram að dregið hafi verulega úr hraða á aukningu lífslíka í Bretlandi á síðustu árum.
Samkvæmt opinberum gögnum hefur dregið meira úr þeim hraða í Bretlandi en í nokkru öðru af 20 ríkustu löndum heims. Þannig lengdist meðalævi kvenna um tæpar 13 vikur á ári, frá 2005 til 2010, en um aðeins eina viku á ári frá 2011 til 2015.
Meðalævi breskra karla hafði lengst um rúmar 17 vikur á ári á fyrra tímabilinu, en aðeins um rúmar 4 vikur á ári frá 2011.