Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Er þúsaldarkynslóðin að murka lífið úr majónesi?

$
0
0

„Sonur minn, Jake, sem er 25 ára gamall, borðar majó. Hann er praktískt þenkjandi ungur maður, sem starfar við tölvur, og elskar makarónísalat. Hann er góður sonur. Ég á líka dóttur. Hún lærði kvenna- og kynjafræði í háskóla. Vitaskuld fyrirlítur hún majónes. Og hún er ekki ein. Inntu unga fólkið sem þú þekkir eftir áliti þess á majónesi og þér mun bregða við tilfinningadýptina sem birtist. Sannarlega eru einstaka jaðartilfelli eins og Jake. En að mestu leyti myndu ungmenni dagsins í dag fyrr fara að lesa fréttir í prentuðum dagblöðum en neyta majóness.“

Þetta skrifar Sandy Hingston, í bandaríska tímaritið Philadelphia, undir fyrirsögninni: How Millenials Killed Mayonnaise eða: „Hvernig þúsaldarkynslóðin drap majónesið“. Mörk þúsaldarkynslóðarinnar eru ekki skýrt afmörkuð, en yfirleitt er átt við fólk sem fætt er frá 1981 til um 1996, og er því á aldursbilinu 22 til 37 ára um þessar mundir.

Greinin hefur ratað víða eftir birtingu, enda hafa skrif sem kenna aldamótakynslóðinni um eitt og annað reynst vinsælt lesefni á síðustu árum. Á miðvikudag birtist þannig pistill í The Guardian þar sem vísað er til greinar Hingstons. Þar er yfirvofandi dauði majónessins gerður að útgangspunkti til að greina sjálfsmyndastjórnmál þúsaldarkynslóðarinnar.

Majónes sem „hvítþvottur“

Í upphaflegu greininni tiltekur Hingston ýmsar ástæður sem hún segir að yngra fólk tefli fram til að rökstyðja óbeit sína á majónesi. Hún hefur það eftir sagnfræðingnum David Merritt Johns að majónesi hafi upprunalega verið ætlað að fela galla á öðrum innihaldsefnum matvæla – gömlum kartöflum, linu salati, túnfiski sem var ekki lengur ferskur. Hún hefur það eftir dóttur sinni, majóneshataranum, að majónes hafi um leið falið í sér bókstaflegan „hvítþvott“: rutt matarmenningu innflytjenda úr vegi með því að fela hversu lélegan mat þeir fengu í staðinn. Nýjar kynslóðir leiti nú aftur eftir hinni upprunalegri, glötuðu, matararfleifð sinni.

Dóttir höfundarins er ekki eina heimild hennar fyrir skrifunum: Árið 2015, segir hún, sló kvikmyndin The Mayo Conspirace eða Majó-samsærið í gegn í sjálfstæða kvikmyndageiranum og vann verðlaun sem besta gamanmynd á kvikmyndahatíðinni World’s Independent Film Festival það ár. Sama ár birtist greinin „24 ástæður þess að majónes er viðbit andskotans“ á vefnum BuzzFeed, miðli sem einkum höfðar til fólks undir miðjum aldri. Höfundur þeirrar greinar uppnefnir majónes víst „slím Satans“. Þremur árum síðar segir Hingston að sami miðill hafi birt samantektina „23 hlutir sem þú skilur aðeins ef þú hatar majónes af lífi og sál“.

Majónes selst jafnt og þétt á Íslandi

Kvennablaðið hafði samband við fulltrúa Gunnars majónes til að spyrjast fyrir hvort þar yrði vart við minnkandi neyslu majóness meðal yngra fólks. Henrý Sverrisson, rekstrarstjóri fyrirtækisins, svaraði um hæli og sagði svo ekki vera. Ekki hafi orðið vart við það í sölu á nokkurn hátt:

„Sala á Gunnars majonesi hefur haldist jöfn og þétt undanfarin ár og frekar aukist heldur en hitt. Við höfum ekki mælt sérstaklega á undanförnum árum hvernig neyslan skiptist milli aldurshópa en við höfum ekki orðið vör við neinar breytingar í neysluvenjum hjá yngri aldurshópum.“

Með eða án majóness virðist sumarið enn vera kjörin árstíð til að hræra saman í skál af gúrkusalati.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283