Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Hauks Hilmarssonar hefur aðeins verið leitað með sjónauka

$
0
0
Grein Snorra Páls um mál Hauks HilmarssonarGrein Snorra Páls um mál Hauks Hilmarssonar

Grein Snorra Páls birtist í Stundinni á dögunum.

Samherjar Hauks Hilmarssonar leituðu hans aðeins með sjónauka eftir að hann hvarf í Afrin í Norður-Sýrlandi, í febrúar á þessu ári. Engin vitni hafa komið fram að falli hans, heldur var gert ráð fyrir að hann hefði látist þegar ekki spurðist til hans. Þetta kemur fram í grein Snorra Páls Jónssonar í nýjasta hefti Stundarinnar en Snorri er á meðal þeirra aðstandenda Hauks sem unnið hafa að sjálfstæðri rannsókn á afdrifum hans, nú í tæpa sex mánuði. Snorri skrifar:

„… þau viðurkenndu í nýlegu bréf til foreldra Hauks að hans hafi einungis verið leitað með sjónauka“

„Dánarvottorð Hauks Hilmarssonar hefur enn ekki verið gefið út, enda á engan hátt fyllilega sannað að hann hafi í raun og veru látið lífið, líkamsleifar hans til að mynda hvergi staðsetjanlegar fram að þessu. Samtökin sem hann barðist með í Rojava hafa ekki bent á sjónarvotta sem staðfest geta fall hans, nákvæma dags-, tíma- og staðsetningu eða tegund umræddrar árásar Tyrklandshers, auk þess sem þau viðurkenndu í nýlegu bréf til foreldra Hauks að hans hafi einungis verið leitað með sjónauka, þar sem ógerlegt hafi verið að komast inn á svæðið eftir yfirtöku innrásarherjanna.“

Þessara upplýsinga hafa aðstandendur sjálfir aflað enda hafa íslensk stjórnvöld, að sögn Snorra, ekki gert „minnstu tilraun“ til að ná „sambandi við fulltrúa YPG, kúrdísku varnarsveitanna, né heldur fulltrúa stjórnmálaarms þeirra, PYD, eða þá annarra fulltrúa yfirvalda í Rojava, þrátt fyrir að YPG séu þau sem upphaflega gáfu út yfirlýsingu um andlát Hauks.“ Leiðir Snorri líkum að því að þarf hafi íslensk stjórnvöld fylgt tilmælum stjórnvalda í Tyrklandi, „þess ríkis sem að öllum líkindum ber ábyrgð á falli Hauks.“

Katrín brást við af yfirlæti

Segir Snorri að enn sé óvíst hvort jafnvel þurfi að grípa til lífsnauðsynlegra aðgerða Hauki til aðstoðar, eins og íslenskum stjórnvöldum hefur bent á frá því fyrstu fréttir af bárast þess efnis að Haukur hefði látist. „Þau varnaðarorð eiga ennþá við í dag, jafnvel þótt tæpir fjórir mánuðir séu síðan bréfið var birt,“ segir Snorri og vísar þar til áskorunar sem 400 manns undirrituðu vegna málsins, og færð var forsætisráðherra síðastliðið vor.

Snorri segir Katrínu Jakobsdóttur hafa brugðist við þeirri áskorun „einungis óbeint“ með „yfirlætisfullum skrifum á Facebook“ þar sem hún hafi gert lítið úr áhyggjum áskorenda og lagt „blessun sína yfir þetta skólabókardæmi um vinnubrögð „höfuðandstæðingsins““, það er Sjálfstæðisflokksins.

Íslensk stjórnvöld þora ekki

Snorri segir íslensk stjórnvöld „neita að beita fullveldinu“ og hvorki þora að spyrja:

„hvað tyrkneski herinn gerði við líkin í Afrin, og hvar lík Hauks gæti þá legið, sé hann fallinn, né hvaðan tyrkneskir fjölmiðlar fengu þær upplýsingar að lík Hauks yrði sent heim til Íslands.“

Samkvæmt ársskýrslu Ríkislögreglustjóra teljast tveir íslenskir ríkisborgarar nú týndir erlendis. Annar týndist árið 2013, hinn er Haukur Hilmarsson. Fulltrúar Forsætisráðuneytisins og Utanríkisráðuneytisins hafa ekki fært fram nein ný svör, efnislega, við fyrirspurnum vegna máls Hauks, svo mánuðum skiptir.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283