Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Nasistar og vinir þeirra flykktust til Chemnitz

$
0
0

Heiko Maas, utanríkisráðherra Þýskalands, skoraði á sunnudag á hinn „þögla meirihluta“ landsins að „standa upp úr sófanum“ og taka afstöðu gegn öfgahægrifylkingum í kjölfarið á óeirðum nasista í Chemnitz:

„Mín kynslóð fékk frelsi, lög, rétt og lýðræði að gjöf. Við þurftum ekki að berjast fyrir því og stundum tökum við því sem gefnu. Við þurfum að stíga upp úr sófanum og opna á okkur munninn.“

Orðin lét Maas falla í viðtali við útbreidda dagblaðið Bild. Hann sagði mikinn meirihluta Þjóðverja vera umburðarlynda heimsborgara. „Þegar kemur að útlendingahatri, öfgahægrinu og rasisma er Þýskaland, með réttu, litið sérstaklega gagnrýnum augum,“ sagði hann.

Aðdragandi

Í Chemnitz komu þúsundir saman á götum úti, á hverju kvöldi í viku, frá því að maður lést af völdum hnífsstungu sunnudaginn 26. ágúst. Tveir karlmenn voru handteknir vegna málsins, annar af íröskum uppruna, hinn sýrlenskum. Samdægurs virðist aðili innan lögreglunnar hafa lekið gögnum málsins til þekktra forsprakka öfgahægrisins, sem boðuðu í kjölfarið til götumótmæla gegn innflytjendum og flóttafólki almennt.

Slagorð sem mótmælendur hrópa hafa meðal annars verið „Þýskaland fyrir Þjóðverja, útlendinga burt“ en einnig „Wir sind das Volk“ – við erum þjóðin, sem hefur tvenna skírskotun í einu: árið 1989 mótmælti almenningur í Austur-Þýskalandi sósíalísku stjórnvöldunum sem sögðust starfa í umboði þeirra, með þessu slagorði, í þeirri hreyfingu sem leiddi til endaloka sósíalísku ríkjanna í Austur-Evrópu. Orðið Volk hefur þess utan varla heyrst í opinberri umræðu síðan á valdatíma nasista, sem höfðu hugtakið í hávegum. Bevölkerung er almennt frekar notuð í hliðstæðri merkingu, án hugrenningatengsla þriðja ríkisins.

Þátttakendur í þessum mótmælum virðast skiptast í tvennt: áberandi eru þeir sem líta opinskátt á sjálfa sig sem nasista og útlendingahatara. Þeir eru þó fámennari en sá meirihluti þátttakenda sem segist „bara venjulegir borgarar“. Þau lýsa því í samtölum við fjölmiðla að þeim þyki nasistastimpillinn ósanngjarn, um leið og þau beina þó mótmælum sínum og sýnilegri reiði gegn útlendingum, og láta sér vel lynda samflot við fyrrnefnda hópinn.

Á samkomunum sem stóðu yfir nær sleitulaust í viku brutust endurtekið út slagsmál og óeirðir. Hópar fóru um götur borgarinnar, ógnuðu þeim sem sýnilega eru af erlendum uppruna og veittu þeim áverka. Vitað er af slíkum árásum gegn fólki frá Afganistan, Sýrlandi og Búlgaríu. Alls eru 37 lögreglurannsóknir hafnar vegna líkamsárása og skemmdarverka í mótmælunum.

„Við erum fleiri,“ var meðal slagorða þeirra sem komu saman í Chemnitz til að sýna samstöðu gegn útlendingahatri um liðna helgi.

Laugardagur við suðupunkt

Átján manns urðu fyrir árásum á laugardag, svo vitað sé. Þann dag, 1. september, komu mótmælendur til borgarinnar víðsvegar að í Þýskalandi, ýmist til þátttöku í mótmælum gegn útlendingum, sem flokkurinn Alternative für Deutschland (AfD) boðaði til þann dag, eða til að veita sýnilega viðspyrnu gegn rasistunum. Á meðan öfgahægrið kyrjar „Wir sind das Volk“ komu andfasistar saman undir slagorðinu „Wir sind mehr“ – við erum fleiri. Það reyndist ekki tilfellið á laugardag, í bókstaflegum skilningi: Að mati lögreglu tóku um 8.000 manns þátt í samkomu hægrisins á laugardag en um 3.000 í mótmælunum gegn þeim. Um 2.000 lögreglumenn voru á vakt.

Meðal þeirra sem urðu fyrir árásum þann dag var Sören Bartol, þingmaður Sósíaldemókrata (SPD), sem var leiddur burt í lögreglufylgd. Þá urðu fulltrúar ýmissa fjölmiðla fyrir ógnunum og beinum árásum frá hægrinu. Meðlimi í tökuliði sjónvarpsstöðvarinnar MDR var til að mynda hrint niður stiga og myndavél þeirra brotin. Ásamt handauppréttingum að sið nasista og öðrum skyldum merkjasendingum hafa þeir hópar sem taka þátt í mótmælunum tekið upp orðfæri á við „Lügenpresse“, lygamiðla, sem samheiti yfir flestalla fjölmiðla landsins, en svo nefndu fosprakkar nasistaflokksins á 4. áratugnum þá fjölmiðla sem ekki voru hliðhollir þeim.

Um viku áður en atburðarásin í Chemnitz hófst greindi Kvennablaðið frá því hvernig hópar nasista færðu sig sýnilega upp á skaftið í Þýskalandi, meðal annars í höfuðborginni, Berlín. Smelltu á myndina fyrir þá umfjöllun.

Því færri útlendingar, því meiri fordómar?

Chemnitz er í Saxlandi, í austurhluta Þýskalands. Þar hefur AfD notið mikils fylgis, er næststærsti flokkurinn á eftir Kristilegum demókrötum (CDU), og er talinn geta orðið stærsti flokkur sambandslandsins í kosningum á næsta ári. Höfuðborg Saxlands er Dresden, en þar voru stofnuð islamófóbísku samtökin PEGIDA. Um leið og útlendingahatur er þannig sýnilegra, og virðist útbreiddara, í Saxlandi en víðast annars staðar í Þýskalandi, er Saxland líka eitt af þeim sambandslöndum þar sem fæstir útlendingar búa: fólk af erlendum uppruna er 10,5% íbúa Þýskalands alls en aðeins 3,9% íbúa í Saxlandi.

Í dag, mánudag, hefur verið boðað til samstöðutónleika í Chemnitz, gegn útlendingahatri. Die Toten Hosen er á meðal þeirra hljómsveita sem hafa boðað komu sína.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283