Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Plata mánaðarins september 2018 – KIKK með hljómsveitinni KIKK

$
0
0

Kikk var merkileg hljómsveit í þeim skilningi að í henni komu Sigríður Beinteinsdóttir söngkona og Guðmundur Jónsson gítarleikari og lagasmiður sér fyrst á tónlistarkortið, en þau áttu bæði eftir að verða meðal þeirra fremstu í íslensku tónlistarlífi. Sveitarinnar verður líka minnst fyrir sex laga LP (Long Playing) plötu 33 snúninga og tíð mannaskipti þann stutta tíma sem hennar naut við.
Platan KIKK með KIKK kom út hið örlagaríka ár þegar framúrstefnusaga George Orwell frá 1949 um árið 1984, gekk bókstaflega í garð. Einhvern vegin hafði alltaf blundað í manni uggur um þetta ár og komu þess og Stóra bróður með sitt alsjáandi auga og alræðisvald sem gleypa myndi allt.

Plata David Bowie „Diamond Dogs“ frá 1974, er að hluta ópera sem byggði á bók Orwells og fjallaði á napran hátt um þetta ár þegar allt átti að breytast.

[Verse] And in the death
As the last few corpses lay rotting on the slimy thoroughfare
The shutters lifted an inch in temperance building, high on Poacher’s Hill
And red mutant eyes gazed down on Hunger City
No more big wheels
Fleas the size of rats sucked on rats the size of cats
And ten thousand peoploids split into small tribes
Coveting the highest of the sterile skyscrapers
Like packs of dogs assaulting the glass fronts of Love-Me Avenue
Ripping and rewrapping mink and shiny silver fox, now legwarmers
Family badge of sapphire and cracked emerald
Any day now, the year of the Diamond Dogs
„This ain’t rock and roll! This is genocide!“

Mynd KFK: Hinn alsjáandi

Stóri bróðir vakir yfir þér

Árið 1984 urðu vissulega skil en þau skil byggðust ekki á sýnilegu alræðisvaldi sem kúgaði þegna heimsins til hlýðni og undirgefni. Skilin voru ósýnileg, vingjarnleg og sniðin að þörfum allra. Þann 24. Janúar 1984 varð bylting í tölvutækni þegar Apple fyrirtækið setti á markað „Macintosh“ heimilistölvuna.

Steve Jobs kynnir fyrsta makkann, 1984:

Kynningin á landsvísu fólst í risasjónvarpsauglýsingu í anda „Big Brother“ á Super Bowl leikunum 1984. Þarna var kominn fyrsti vísir að tölvum eins og við þekkjum þær í dag, með þægilegu vinnsluumhverfi, og myndrænum skjátáknum (GUI – The graphical user interface (GUI /ˈɡuːi/), is a type of user interface that allows users to interact with electronic devices through graphical icons and visual indicators such as secondary notation, instead of text-based user interfaces, typed command labels or text navigation.) – sem stjórnað var með fyrstu tölvumúsinni.

Fyrsta einstaklingstölvan þar sem maður gat dvalið löngum stundum í eigin gerviheimi var mætt. Netið bætti um betur og hin öra tækniþróun fram til dagsins í dag hefur gert okkur að máttvana þjónum hins ósýnilega guðs – Stóra bróður.

Mynd KFK: Horfðu stíft á rauða punktinn í 20 sekúndur og svo á næsta vegg

Sigga Beinteins

Sigríður María Beinteinsdóttir, fæddist 26. júlí 1962 í Reykjavík. Sigga byrjaði í sinni fyrstu hljómsveit árið 1980 með Dr. Gunna sem hlaut nafnið Geðfró. Sigga segist hafa eytt unglingsárum sínum í að glamra á gítar heima hjá sér, og syngja með. „Það mátti enginn hlusta á mig náttúrulega, ég var svo feimin. Það mátti enginn heyra í mér eða sjá eða neitt.“ Leyndin yfir hæfileikunum entist þó ekki lengi. „Svo var bara ein vinkona mín sem kemur til mín eitt kvöldið, og hún segir: „Þú átt bara að fara að syngja í hljómsveit, þú ert að syngja rosa vel! Og ég alveg: „Nei, ekki séns, ég er ekki að fara að gera neitt svoleiðis.““ Framhaldið var örlagaríkt: „Svo að hún hótaði mér nú eiginlega og sagði: „Ókei, ef að þú ferð ekki, næst þegar við sjáum einhverja hljómsveit auglýsa eftir söngkonu eða söngvara, þá tala ég aldrei við þig aftur.““

Skammaðist sín fyrir Geðfró

Fljótlega rákust vinkonurnar á slíka auglýsingu og í framhaldinu fór Sigga í prufu.

„Þar var Dr. Gunni, og þá var hann að byrja. Hljómsveitin hét Geðfró, þetta er eiginlega eitt af þessum skiptum sem ég þori að segja það, ég skammaðist mín svo fyrir það þegar ég var í þessari hljómsveit. Mér fannst þetta svo hrikalegt nafn. En ég þori að segja það í dag. Þannig byrjaði þetta, og svo vorum við að spila hér og þar.“

Þá fór boltinn að rúlla. Guðmundur Jónsson í Sálinni hans Jóns míns bauð Siggu í samstarf, og störfuðu þau um tíma saman með hljómsveitinni Kikk. Hljómsveitin KIKK var stofnuð haustið 1982 og voru áðurnefnd Sigríður og Guðmundur meðal stofnenda en aðrir meðlimir í upphafi voru Sigurður Helgason trommuleikari (Kaktus, Exodus o.fl.) og Sveinn Kjartansson (síðar þekktastur sem upptökumaður). Í febrúar 1983 bættist fimmti meðlimurinn, hljómborðsleikarinn Gunnar Rafnsson við.

Þannig skipuð fór sveitin á fullt, lék í fyrstu á tónleikum innan höfuðborgarsvæðisins en bætti síðan við sveitaböllum, strax í upphafi voru eigin lagasmíðar í rokkaðri kantinum áberandi á prógramminu en Guðmundur gítarleikari var þar fremstur í flokki, hann átti síðar eftir að vera meðal fremstu lagahöfunda landsins.

Fljótlega spurðist út að Kikk hefði hlotið plötusamning við hljómplötuútgáfuna Steina en útsendari fyrirtækisins hafði séð sveitina á sviði á SATT-kvöldi, sem voru haldin þó nokkur um það leyti.

Um vorið urðu fyrstu mannabreytingar í Kikk en þá kom Nikulás Róbertsson hljómborðsleikari (Start o.m.fl.) inn fyrir Gunnar Rafnsson sem þá gekk til liðs við Egó. Sveitin stóð í ströngu við plötuupptökur og spilamennsku allt sumarið.

Einhverjir tónlistaskríbentar blaðanna urðu til að gagnrýna enska texta sveitarinnar en meðlimir hennar svöruðu því til að þeir væru einungis til bráðabirgða, til stæði að gera íslenska texta við lögin. Af því varð þó aldrei. Kikk gaf út plötuna Kikk fyrir jólin 1984.

Mynd KFK: Frá vinstri: Guðmundur Jónsson, Nikulás Róbertsson, Sigga Beinteins, Sveinn Kjartansson og Jón Björgvinsson

Viðtal við hljómsveitina KIKK í vikublaðinu Helgarpóstinum 8. apríl 1983 hjá Helgu Haraldsdóttur og Páli Pálssyni umsjónarmönnum poppþáttarins Stuðarinn:

„Maður er skíthræddur við viðbrögðin“

Við erum stödd í húsgagnabólstrun suður í Kópavogi til að hitta rokk-hljómsveitina KIKK að máli. Eftir að hafa hlustað á tvö lög vörpum við fram fyrstu spurningunni:

Hvenær byrjuðuð þið í bransanum?

Svenni: Ja, sko KIKK byrjaði um áramótin og ætli við segjum ekki að það hafi verið byrjunin.
Silli: Sigga var áður í Meinvillingum.
Sigga: Já og Gunni spilaði einu sinni með Lúsifer og Kertunum í sveitinni fyrir austan.
Gunni: Heyriði mig nú, ég veit ekki betur en Svenni hafi spilað með Lögréttu á Ísafirði og Gummi hafi verið í Janusi á Skagaströnd…
Sigga: Hvar er Skagaströnd?
Gummi: Ertu eitthvað skrýtin? Veistu ekki hvar Skagaströnd er?
Gunni: …já og Silli var í Exódus.

Ferlega gaman

—Hvernig hefur svo gengið?

Svenni: Bara vel,
Sigga: Mjög vel.
Silli: Jú ágætlega, við höfum svo sem ekki komið mikið fram. Bara á Borginni, Glæsibæ, Þórskaffi og svo í Fellahelli þar sem við spiluðum fyrir 20 manns…
Gummi: Voru ekki fleiri?
Sigga: Segjum fimmtíu. Eyddum heilum degi í að róta öllu draslinu. Voru annars svona fáir?
Svenni: Þetta er samt ferlega gaman, — annars eyddi maður ekki hverju kvöldi í þetta…
Silli: …og stórfé.
Sigga: Við ætlum að reyna að fjármagna þetta með sveitaböllum.
Silli: Erum fín á þau.
Gunni: Já einmitt.
Sigga: Eigum að spila á Hellissandi á annan í páskum, en það er fyrsta sveitaballið okkar.
Silli: Við spiluðum líka í Breiðholtinu.
Gunni: Ja…
Svenni: En.. fyrirgefiði, hvar er aftur Hellissandur?
Gunni: Ertu eitthvað ruglaður?
Sigga: Þú hlýtur að vita hvar Snæfellsnes er?
Svenni: Bíddu! Já, er það þar?

—Hvernig er samkomulagið?

Silli: Alveg stórfínt.
Siggu: Alveg súpergott
Gunni: Við erum eins og systkini…
Silli: Mig vantar snúrur!
Gunni: Ég redda því, — hvenær borgarðu?
Silli: Eee — um mánaðamótin.
Gunni: Fínt.

Tónleikagrúppa

Gummi: Helst vildum við bara spila frumsamið efni og vera tónleikagrúppa.
Sigga: Það er langskemmtilegast, en það er samt ekkert leiðinlegt að æfa sveitaballaprógramm…
Svenni: …til dæmis Rabbabara Rúnu.
Silli: Uss!
Gummi: Svo stefnum við að því að hafa góða texta þrungna meiningu.
Sigga: En við kunnum bara ekkert að yrkja og höfum því notast við enska bulltexta svona til að hafa eitthvað. Þetta stendur nú til bóta, það er verið að semja fyrir okkur texta.
Gummi: Það er sennilega þessum ensku textum að kenna að okkur hefur verið líkt við útlenskar hljómsveitir, því við stælum engan og skiljum ekkert í þessu.

—Er góð tilfinning að koma fram á tónleikum?

Sigga: Ég hef verið alveg rosalega stressuð.
Gunni: Maður er skíthræddur við viðbrögðin.
Gummi: Við erum engin sérstök framúrstefnuhljómsveit og höfum verið gagnrýnd fyrir það, en við leggjum mikið upp úr melódískri músik.
Sigga: En þetta veltur allt á því að fólk mæti á tónleika og sýni svona starfsemi einhvern áhuga. Það er frekar illa mætt á Borgina á fimmtudagskvöldum og eins á SATT- kvöldin,
Gunni: Eins hafa verið gerðar tvær misheppnaðar tilraunir til að halda tónleika án aldurstakmarks á Borginni á laugardögum. Seinni tónleikunum var aflýst og ég held að þetta sé úr sögunni.

Draumurinn…

Gummi: Plata? Auðvitað er það draumurinn.
Gunni: Ég er nú þeirrar skoðunar að það sé ekki rétt að byrja á plötuútgáfu. Hljómsveitir þurfa að spila töluvert lengi saman áður en farið er út í að gera plötu.
Gummi: Maður verður að sjá viðbrögðin fyrst, svo kannski…“

Mynd: Guðmundur Jónsson gítarleikari og lagahöfundur

Lagasmiður og gítarleikari

Guðmundur Jónsson er búinn að starfa sem tónlistarmaður í meira en þrjá áratugi, aðallega sem lagasmiður og gítarleikari. Hann er einn af stofnendum hljómsveitarinnar vinsælu Sálin hans Jóns míns, sem hefur spilað á óteljandi tónleikum, gefið út ógrynni af efni og verið í samstarfi við marga aðila eins og Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Borgarleikhúsinu og Stórsveit Reykjavíkur.

Gummi var líka í öðrum hljómsveitum sem voru eins ólíkar eins og þær voru margar. Má þar nefna þungarokksveitina Nykur, sveitabandið Vestanáttina, nýbylgjusveitina Trúboðana og kokteil-funk-tríóið A+. Hann hefur líka gefið út þrjár sólóplötur, þríleikinn; Japl, Jaml og Fuður og eftir hann liggur fjöldi af stökum lögum með ýmsum listamönnum.

Á KIKK plötunni eru fjögur lög af sex eftir Guðmund:

Lagið LOOKING FOR SOMEONE á hlið 1, þar sem Guðmundur semur lagið en textann gerði hann í samvinnu við Albert Icefield, þann hinn sama sem vann með Náttúru við textagerð á Magic Key.
Á hlið 2 eru svo öll lögin eftir Guðmund, bæði lag og texti;
1. IT’S A WAR
2. VICTIMS
3. PICTURES

Mörgum þótti skrýtið að lögin væru öll sungin á ensku þegar menn kepptust við á þessum tíma að senda frá sér efni á íslensku. Skýring hljómsveitarinnar var að ensku textarnir hefðu verið samdir til bráðabyrgða þar til þeir íslensku væru tilbúnir, sem aldrei varð.

Mynd KFK: Kikkað inn

A – hlið

1. TRY FOR YOUR BEST FRIEND 4.oo
(Nikulás Róbertsson/Pétur Helgason)

2. IS THIS THE FUTURE? 4.22
(Kikk/Pétur Helgason)

3. LOOKING FOR SOMEONE 4. 00
(Guðmundur Jónsson/Guðmundur Jónsson, Albert Icefield)

KIKK
SIGRÍÐUR M. BEINTEINSDÓTTIR: söngur
SVEINN KJARTANSSON: bassi
NIKULÁS RÓBERTSSON: hljómborð
GUÐMUNDUR JÓNSSON: gítar
JÓN BJÖRGVINSSON: trommur

Mynd KFK: Vélin

B – hlið

1. IT’S A WAR 4.58
(Guðmundur Jónsson)
2. VICTIMS 3.47
(Guðmundur Jónsson)
3. PICTURES 3.20
(Guðmundur Jónsson)

Upptökustjórn: Tómas M. Tómasson
Hljóðritað í Hljóðrita, Grettisgati og Stemmu
Upptökumenn: Gunnar Smári Helgason og Sigurður Bjóla
Útsetningar: Kikk og Tómas M. Tómasson
Umslag: Sveinbjörn og Sigga
Ljósmynd: Bjarni Jónsson
Filmuvinna og prentun: Prisma
Útgefandi: Steinar hf
Útgáfuár: 1984

Platan var að öllu leyti unnin á Íslandi.

Mynd KFK: Þú er bara að plata mig

Vertu ekki að plata mig

Úr fréttatilkynning um plötu Kikk í Morgunblaðinu 2. desember 1984
„Við gerðum eina plötu. Þá kemur Björgvin Halldórs, hann var eitthvað að stússast þegar við vorum að taka upp plötuna. Hann hringir í mig og segir: „Heyrðu ég heyrði í þér í stúdíóinu og værirðu ekki til í að syngja með okkur?“
Við lagið sem Sigga söng með Björgvini var gert myndband í „American Graffiti“ stíl og lagið sló í gegn. Það er í dag eitt þekktasta „80´s“ lag íslenskrar dægurlagasögu og myndbandið við lagið lýsir vel þessum tíma.

Vertu ekki að plata mig:

Sigga segir mikla breytingu hafa orðið á tónlistarbransanum síðan hún byrjaði. „Eftir að netið kom þá er þetta náttúrulega allt öðruvísi, að koma sér á framfæri og annað. Þegar ég var að byrja var þetta þannig að þú varst að spila úti um allt, og þú vonaðist til að það sæi þig einhver. Þegar við vorum í Kikk, þá voru hljómsveitir að spila inni á allskonar skemmtistöðum, til þess að koma sér á framfæri.
Sigga segist hafa spilað með Kikk á skemmtistaðnum Klúbbnum í Borgartúninu. „Þá sér Steinar Berg okkur, sem var með plötuútgáfuna Steinar. Þannig að við komumst þar á samning. Maður var bara að spila úti um allt, og reyna að koma sér á framfæri þannig, og reyna að komast í blöðin og viðtöl í útvarp og svona.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283