Starfsáætlun Alþingis barst fjölmiðlum á þriðjudag. Þingsetning er fyrirhuguð viku síðar, þriðjudaginn 11. september, og kynning fjárlaga síðar í sömu viku, föstudaginn 14. september. Þingfundir munu standa að mestu leyti daglega, til 14. desember, þegar við tekur ríflega mánaðarlangt hlé frá þingfundum yfir jól og áramót.
Nefndastörf hefjast aftur þann 15. janúar 2019. Þann 21. sama mánaðar hefjast þingfundir á ný. Kjördæmadagar verða haldnir í febrúar og páskafrí verður í apríl, en annars er gert ráð fyrir að þingfundir standi yfir að mestu hlélaust til 5. júní.