BjarnÞóra María Pálsdóttir skrifaði á þriðjudag Facebook-færslu þar sem hún ásakar stjórnvöld um að tryggja „að bestu læknarnir fari örugglega úr landi“. Skurðlæknir sem hún ráðgerði aðgerð hjá í janúar er á förum til Englands. BjarnÞóra spyr í færslunni: „Af hverju í ósköpunum má einstaklingur sem hefur fjárfest í eigin menntun ekki græða eilítið á því ef að við sem þurfum þjónustuna fáum bestu mögulega aðstoð sem völ er á?“
Færsla BjarnÞóru fylgir í heild sinni hér að neðan:
Ég hitti Kristján Skúla brjóstaskurðlækni á mánudaginn til að fara yfir aðgerðarplönin mín. Planið var brjóstnám í janúar.
Hann sagði mér að staðan væri ekki góð eftir áramótin vegna þess að samningur við sjúkratryggingar rennur út um áramótin og okkar stórkostlegu pólítikusar stefna á að semja ekki við læknana okkar.
Verkefnið: „Tryggjum að bestu læknarnir fari örugglega úr landi“ heldur áfram sem aldrei fyrr.
Hann talaði samt um að ég gæti komið út til Englands í aðgerð til hans, lagt út fyrir henni og fengið aðgerðina greidda þegar ég kæmi heim.
Um er að ræða stóra aðgerð og tilhugsun um að skríða saman eftir slíka aðgerð á hótelherbergi í útlöndum, flækjast í gegnum flugstöðvar og svo auðvitað sjálft flugið er ekkert mjög spennandi kostur.
Þvílíka bullið sem heilbrigðiskerfið okkar er. Allt á þrjósku um að enginn megi hagnast á neinu.
„Það mun kosta samfélagið miklu miklu meira að bregðast við krabbameini sem ég er í svo mikilli áhættu með að fá en að semja við okkar færasta brjóstaskurðlækni sem starfar ennþá við þetta „haltu mér slepptu mér“ ástand“Af hverju í ósköpunum má einstaklingur sem hefur fjárfest í eigin menntun ekki græða eilítið á því ef að við sem þurfum þjónustuna fáum bestu mögulega aðstoð sem völ er á?
Það vita allir sem vilja vita að ríkisspítalinn okkar er ekki að anna því sem til þarf og aðstaðan þar er svo löngu sprungin að það er þörf á öðrum valmöguleikum í heilbrigðiskerfinu.
Hvort myndir þú vilja liggja á gangi eða með 4-5 öðrum misveikum einstaklingum á stofu, hlustandi á háværar vélar brjóta klappir og smiði berja og negla allan daginn
eða vera á einkaherbergi með makanum þínum sem má gista með þér meðan þú jafnar þig eftir jafn stóra (andlega sem líkamlega) aðgerð líkt og brjóstnám er?Jú ég vissulega þarf að greiða örlítið fyrir sjúkrahótelið hérna heima en mér finnst að ég eigi að fá aðgerðina ókeypis.
Það mun kosta samfélagið miklu miklu meira að bregðast við krabbameini sem ég er í svo mikilli áhættu með að fá en að semja við okkar færasta brjóstaskurðlækni sem starfar ennþá við þetta „haltu mér slepptu mér“ ástand.
Ætli hann fari ekki endanlega líka eins og þeir gera sem fá svona framkomu frá stjórnvöldum.