Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Strætó rukkaði erlendan bílstjóra um 75.000 krónur fyrir hálft herbergi

$
0
0
Sanna Magdalena Mörtudóttir

Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi.

Að minnsta kosti einn bílstjóri hjá Strætó greiddi fyrirtækinu til baka 70 þúsund krónur af mánaðarlaunum sínum í leigu fyrir herbergi sem hann deildi með öðrum. Þetta kemur fram í Facebook-færslu frá Sönnu Magdalenu Mörtuddótur, borgarfulltrúa Sósíalistaflokksins á miðvikudagskvöld, en hún segist hafa undir höndum launaseðil sem sýni fram á þetta. Þá hafi maðurinn einnig, samkvæmt launaseðlinum, verið rukkaður um flugfar til Íslands.

Sanna segir að maðurinn hafi verið ráðinn í gegnum starfsmannaleigu. Miðað við fyrri yfirlýsingar Strætó sé ekki hægt að gera ráð fyrir að fyrirtækið sjálft leigi út gistirými eða greiði kostnað við flugferðir, og því líti út fyrir að Strætó hafi haft milligöngu um innheimtu fjármunanna fyrir starfsmannaleiguna sem í hlut á. Sanna segir sennilegt að það sé starfsmannaleigan Elja, sem Strætó hefur skipt við.

Strætó bs. er í opinberri eigu. Þegar Sanna benti á það fyrr í haust að fyrirtækið skipti við starfsmannaleiguna Elju svöruðu stjórnendur þess því til að ólíkt öðrum viðskiptavinum starfsmannaleigunnar semdi fyrirtækið ekki um lanagreiðslur til starfsmannaleigunnar heldur til starfsmannanna beint. Mátti á þeim skilja að þannig væri sú mismunun í útborguðum launum útilokuð sem á hefur reynst eiga sér stað á öðrum vinnustöðum fyrir tilstill starfsmannaleiga. Þetta ítrekaði fulltrúi fyrirtækisins í samtali við blaðamann Kvennablaðsins á þeim tíma. Arthúr Vilhelm Jóhannesson, framkvæmdastjóri Elju, svaraði því einu til, þegar Kvennablaðið leitaði staðfestingar hans á þessu fyrirkomulagi, að „Elja starfsmannaþjónusta getur ekki tjáð sig um efni samninga við einstaka viðskiptavini sem trúnaður ríkir um af okkar hálfu.“

Sanna segir opinbert fyrirtæki, með þessum starfsháttum, vera orðið hluta „af vef ófyrirleitinna einkafyrirtækja“ og „innheimtufyrirtæki fyrir hræGAMMA sem nota sér neyð efnalítilla“ – en eigendur Elju eru, að því er fram kemur í færslu hennar, flestir starfsmenn Heildar fasteignafélags, sem er dótturfélag Gamma. Sanna fordæmir í færslunni framkomu Strætó bs. gagnvart starfsfólki sínu og hvetur alla eigendur fyrirtækisins, það er íbúa á höfuðborgarsvæðinu, til að gera hið sama. Hún krefst þess „að Strætó borgi starfsfólki sínu þau laun sem það hefur unnið sér inn og hætti allri innheimtu fyrir hönd starfsmannaleiga og leigusala.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283