Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

100 heimilislausir fá skjól í ráðhúsi Parísarborgar

$
0
0
Anne Hidalgo, borgarstjóri Parísar

Anne Hidalgo, borgarstjóri Parísar

Anne Hidalgo, borgarstjóri Parísar, hefur tilkynnt að ráðhús borgarinnar muni hýsa heimilislausa þegar vetur gengur í garð.

Hidalgo fer fyrir meirihluta sósíalista í París. Hún gerði heyrinkunnugt um þessa fyrirhugaða nýtingu ráðhússins í ákalli til íbúa og fyrirtækja borgarinnar um að taka höndum saman um að hýsa þá sem lifa á götum borgarinnar, sem taldir eru um 3.000 alls, yfir veturinn. Hún sagði að borgin yrði að veita gott fordæmi, og yrði hluti ráðhússins nýttur til að veita 100 manns húsaskjól.

Hidalgo vonast til að hafa fundið 1.500 manns samastað fyrir árslok, og vonast til að ríkið muni veita þeim 1.500 sem eftir standa skjól. Þá verða reist smærri neyðarskýli víða um borgina.

Ráðhúsið sem er 150 ára, 400 ára og 650 ára gamalt

Hôtel de Ville er heiti byggingarinnar, sem er aðalaðsetur borgarstjórnar og æðstu stofnana borgarinnar. Byggingin, sem var upphaflega reist snemma á 17. öld, er í fjórða hverfi Parísar. Á reitnum þar sem hún stendur hefur þó borgarstjórn Parísar haft aðsetur öllu lengur, eða frá því 1357.

Hin langa saga byggingarinnar fjölskrúðug eftir því: í uppreisninnni 1871, Parísarkommúninni, var kveikt í byggingunni og brann hún til grunna. Ytra byrðið var endurbyggt samkvæmt upphaflegri hönnun, þó stærra en fyrr. Innviðum byggingarinnar var aftur á móti breytt verulega við endurbygginguna.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283