Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

SNAPP – Skemmtiþáttur Kvennablaðsins lítur dagsins ljós

$
0
0

Ég var eitthvað niðurdregin í fyrradag svo ég ákvað að búa til örstutta skemmtiþætti fyrir Kvennablaðið. Þættirnir heita SNAPP og segir þar frá þremur vinkonum sem nota Snapchat þ.e. snappa til að hafa samskipti hver við aðra.

Ég vildi ekki vera að pína leikkonurnar sem ég fékk til verksins til að hafa of mikið fyrir þessu þannig að ég bað þær bara um að taka senurnar sínar upp heima hjá sér og nota til þess símana sína. Ég gat sjanghæjað einhverjar bestu grínleikkonur landsins í þetta verkefni, þær Ólafíu Hrönn Jónsdóttur, Guðlaugu Elísabetu Ólafsdóttur og Björk Jakobsdóttur og kann ég þeim bestu þakkir fyrir. Einnig vil ég þakka börnunum mínum fyrir að kenna mér á iphone og að nota imovie.

Ég setti saman af ákafa og talsverðu oflæti stutta kynningarstiklu sem þið getið séð hér. Svo vona ég að fyrstu þættirnir sem ég er að klippa núna líti dagsins ljós strax í næstu viku.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images