Klukkan að verða sex á mánudagskvöld tók lögregla upp piparúða og beitti gegn mótmælendum á Austurvelli. Að sögn mótmælenda var árásin með öllu tilefnislaus. Reyndur aðgerðasinni, sem meðal annars tók þátt í Búsáhaldabyltingunni fyrir nú áratug síðan, sagði í samtali við Kvennablaðið að hann hefði aldrei séð lögreglu beita piparúða jafn fljótt og tilefnislítið gegn mótmælendum, og sagðist sleginn yfir þessum viðbrögðum yfirvalda.

Fórnarlamb piparúðaárásarinnar og lögreglumaður á Austurvelli, um kl. 18 á mánudag.
Hér má sjá rúmlega 12 mínútna upptöku frá beinni útsendingu Jæja-hópsins á Austurvelli um það leyti sem lögregla réðst á mótmælendur:
Lögregla réðst gegn mótmælendum fyrir að bera pappaspjöld á Austurvöll
Lögreglan gerði fyrr um daginn upptækt tjald sem mótmælendur settu upp á vellinum. Í viðtali við fréttastofu RÚV sagði fulltrúi mótmælenda að þau hefðu þó haft leyfi borgaryfirvalda til að tjalda þar. Þegar leið á daginn biðluðu mótmælendur til stuðningsfólks að færa sér hlý föt, teppi og tjöld, þar sem hópurinn hugðist, eftir að tjaldið var gert upptækt, eftir sem áður dvelja á Austurvelli til að vekja athygli á kröfum sínum.
Tvær manneskjur voru handteknar: íslenskur aðgerðasinni að nafni Elínborg Harpa Önundardóttir, og maður úr hópi flóttafólks, að nafni Hamza. Í kvöldfréttum RÚV gaf fulltrúi lögreglu þá skýringu á valdbeitingu lögreglunnar gegn mótmælendum að þeir hafi borið pappaspjöld á Austurvöll. Lögregla hafi ályktað að spjöldin væru ætluð til að hlaða bálköst og gripið inn í til að fjarlægja þau. Þetta hafi mótmælendur ekki verið sáttir við enda var ætlun þeirra með pappanum ekki að kveikja bál heldur að gera mótmælaskilti og að sitja á þeim, enda jörðin köld. Þegar mótmælendur vildu ekki una því að pappinn væri gerður upptækur hafi lögregla handtekið tvo þeirra fyrir mótþróann og loks beitt piparúða gegn þeim sem andmæltu handtökunum.
„Hvers vegna er lögreglan svona grimm?“
Um hálftíma eftir árás lögreglunnar á mótmælendur birtu skipuleggjendur mótmælanna færslu á Facebook um málið. Þar segir að lögregla hafi brotið upp friðsamleg mótmæli, beitt táragasi/piparúða og handtekið tvo mótmælendur. Þá spyrja mótmælendur „Hvers vegna er lögreglan svona grimm? Við erum í almannarými og leitum eftir áheyrn yfirvalda. Hvar er réttur okkar til að krefja fólk í opinberum embættum um svör?“
Kvennablaðið reyndi að ná tali af fulltrúm lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við vinnslu þessarar fréttar. Viðbrögð lögreglunnar við þeim tilraunum eru svohljóðandi:
Elínborg leyst úr haldi eftir mótmæli við Hlemm
Síðar um kvöldið fluttu mótmælendur mótmælafundinn að lögreglustöðinni við Hlemm og kröðust þess að hin handteknu, Elínborg Harpa og Hamza, yrðu leyst úr haldi. Elínborg Harpa var loks leyst úr haldi klukkan að ganga tíu um kvöldið. Rúmri klukkustund síðar mátti lesa á vef Vísis að Hamza hefði einnig verði sleppt.






