Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Þjóðernissinnar boða til mótmæla á grundvelli rógburðar

$
0
0

Flokkur landsins smæstu sálna, Íslenska þjóðfylkingin (Íþ), hefur boðað til mótmæla á Austurvelli á laugardag. Í tilkynningu um mótmælin eru þau sögð beinast gegn „ofbeldi hælisleitenda gegn íslensku samfélagi og lögreglunni okkar“. Í tilkynningunni er ekkert dæmi nefnt um slíkt ofbeldi né hver hafi beitt því. Óljóst er hvort orðalagið fellur undir meiðyrðalöggjöf eða lög um hatursorðræðu. Hvað sem því líður er það, samkvæmt öllum heimildum ritstjórnar, alfarið tilhæfulaust.

Ósannindi í tilkynningu, ósannindi í viðtali

Í tilkynningunni er stuðningslið Íþ hvatt til að „mæta með íslenska fánann í friðsömum og þögulum mótmælum“. Þetta ítrekar fulltrúi hópsins, Helgi Helgason, í samtali við blaðamann DV:

„Við hvetjum fólk til að taka með sér íslenska þjóðfánann og við ætlum að standa þarna í rólegheitum og mótmæla því ofbeldi sem átti sér stað gegn íslensku samfélagi og íslensku lögreglunni …“

Þá endurtekur Helgi fyrrnefndan rógburð í garð hælisleitenda og bætir við ítarlegri ósannindum:

„Þeir réðust á lögreglu, svo voru þeir að hlaða í bálköst og reyndu að setja upp tjöld.“

Samkvæmt öllum birtum upptökum og heimildum Kvennablaðsins er rétt að mótmælendur á Austurvelli reyndu að setja þar upp tjöld síðastliðinn mánudag. Þeir reyndu aftur á móti ekki að hlaða í bálköst og réðust ekki á lögreglu. Þvert á móti sýna allar birtar upptökur skýrt hvernig lögregla réðist að fyrra bragði á mótmælendur, að sögn til að gera upptæk pappaspjöld.

Alvarlegasta ásökunin sem heyrst hefur frá lögreglumönnum um viðbrögð mótmælenda við árásinni er að ung íslensk kona hafi, þar sem hún lá í jörðinni, umkringd hópi einkennisklæddra og vopnuðra embættismanna sem beittu hana tökum, sparkað frá sér. Liggjandi. Ekki hefur heyrst af því að þetta meinta spark hennar hafi valdið lögreglumönnum áverka.

Blaðamaður DV gerði enga athugasemd við málflutning Helga Helgasonar.

Friðsöm mótmæli

Við fundarboð Íþ á Facebook eru rituð örfá ummæli. Kalla Lóa Karlsdóttir, fyrrverandi starfsmaður lögreglustjóraembættisins í Reykjavík, skrifar:

„Ef ég væri ekki á Spáni akkúrat núna, hefði ég mætt á Austurvöll í gærkvöld með prik fyrir flóttamanna-pakkið, og vel valinn orð til þessa pakks sem eru Íslendingar, því ég skelf af reiði.. Helvíti bara..“

Vænta má að einhverjir þeir úr hópi íslenskra útlendingahatara sem ekki hafa sjálfir gerst innflytjendur á Spáni hlýði fundarboðum Íþ og mótmæli á Austurvelli á laugardag.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images