Í hádegisfréttum RÚV sagði Svandís Svavarsdóttir að eftir 4. maí yrði skólastarf barna með hefðbundum hætti og reglum um tvo metra á milli fólks yrði ekki framfylgt í skólum enda væri það illa gerlegt þegar um starf barna væri að ræða. Einnig tilkynnti Svandís að íþrótta- og tómstundastarf barna verði þá strax 4. maí með eðlilegum hætti.
Reglur um tveggja metra bil á milli fullorðinna verða áfram í gildi eftir 4. maí og munu kennarar þurfa að taka hliðsjón af því á vinnustöðum sínum.






