Kvennablaðið stingur upp á því að Vinnumálastofnun hækki þjónustustig sitt nú þegar vegna sérstakra aðstæðna og ráði fleiri starfsmenn til að aðstoða fólk í kröggum fremur en að biðja umsækjendur um að sýna biðlund eða með öðrum orðum að vísa því tímabundið út á Guð og gaddinn.
Vinnumálastofnun á að sögn þeirra sem stofnuninni stýra fullt í fangi við að greiða götu þeirra sem til stofnunarinnar leita, en alls hafa stofnuninni borist tæplega 35.000 umsóknir til viðbótar við þá 15.000 sem voru atvinnulausir fyrir.
Þetta mætti leysa auðveldlega með ráðningu viðbótar starfskrafta og draga úr atvinnuleysi í leiðinni.






