Þegar ég fór af stað með Prjónasmiðju Tínu í júní 2012 þá var eitt af markmiðunum að námskeiðin mín yrðu bæði eftirsótt og ekki síst þekkt fyrir gæði. Einu og hálfu ári síðar get ég sagt að ég er langt komin með að ná því. Námskeiðin sem ég hef haldið í haust og vetur í garnbúðinni Gauju í Mjódd hafa verið afar vel sótt og hef ég aðeins þurft að aflýsa einu. Einnig bárust talsverðar pantanir um námskeið í heimahús, vinnustaði og á landsbyggðinni.
Árið 2013 hefur verið viðburðaríkt í meira lagi. Ég byrjaði að fara með námskeið út á land, heimasíðan mín fór í loftið, ég fór að halda námskeið í garnbúðinni Gauju, 12 nýjar uppskriftir voru birtar og vinafjöldinn á Facebook tók flugið og svo var viðtal við mig í Vikunni núna í síðustu viku. Ekki má gleyma kynnum mínum við Steinunni Ólínu sem olli straumhvörfum í mínu prjónalífi svo ekki sé meira sagt. Hún tók við mig útvarpsviðtal og fór að taka upp prjónamyndbönd með mér og birta þau á vef Kvennablaðsins. Smátt og smátt eru Prjónarar landsins að komast að því hver ég er og að ég viti sitt lítið af hverju um prjón. Pistlarnir mínir birtast nú á þremur stöðum, hér á blogginu mínu, hjá Innihaldi og hjá Kvennablaðinu. Að lokum kom fyrsta bókin af „Litlu munsturbækurnar hennar Tínu“ út.
Staðreyndin er að ekkert af þessu hefði orðið ef ekki væri fyrir þig sem lest það sem ég skrifa og tekur þátt í þessu öllu með mér. Það er því mikið þér að þakka hversu vel er að ganga hjá mér. Án þín væri tilgangurinn í þessu ekki mikill. Þess vegna ákvað ég að gefa þér jólagjöf í ár.
Ég hugsaði vel og lengi hvað það væri sem ég gæti gert og að lokum var uppskrift niðurstaðan. Uppskrift er eitthvað sem nýtist öllum prjónurum og hér er hún.
Uppskriftin fékk nafnið Rósin og ættu allir að geta ráðið við hana. Hún er líka afar fljótleg og ótrúlega skemmtilegt að prjóna hana.
Eitt vil ég þó sérstaklega taka fram en það er garnið sem ég notaði. Ég skipti mér venjulega aldrei af því hvaða garn er notað í uppskriftirnar en nú ætla ég að gera undantekningu á því. Ástæðan er afar einföld. Treflasjalið er svo einfalt og látlaust og gera yrjurnar í DONEGAL garninu, hrikalega mikið fyrir Rósina. Yrjurnar gefa því nægilega mikið boost en þó án þess að gera of mikið af því. Ég gerðist því ótrúlega frek og fór í garnbúðina Gauju í Mjódd þar sem ég fékk garnið og bað um að fleiri litir yrðu pantaðir. Halldóra (sem gerir nánast allt fyrir mig) varð að sjálfsögðu við því og leyfði mér að velja litina sem hún myndi panta. Ég ákvað svo að bíða eftir því að sendingin yrði komin áður en ég gæfi þér þessa uppskrift. Sendingin kom svo í hús í gær.
Ef þú býrð úti á landi hvet ég þig til að hringja bara í þær eða senda þeim póst á gauja@gauja.is og blikka þær til að senda þér. Hér er litaspjald sem ég fann hjá framleiðandanum sjálfum og getur mögulega hjálpað þér aðeins. Litirnir þarna gefa þó ekki alveg rétta mynd en þó einhverja hugmynd. Bleiki liturinn sem ég notaði er númer 65 og vínrauði er númer 60.
Óskina héðan um yndisleg jól
ykkur við sendum með ljúfustu lund.
Gleði og gæfu með hækkandi sól
gefist ykkur á stjarnljósa stund
Þetta fallega ljóð er samið af vinkonu minni henna Lilju Sigurðardóttur. Hana finnur þú líka hjá Prjónasmiðju Tínu á Facebook.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Hlýjar jólakveðjur frá mér og Gunnari (Sá umburðalyndi).
Tína
Hér finnur þú svo gjöfina. Rósin