Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Leðurblökustrákurinn bjargar San Fransisco

$
0
0

Íbúar San Fransisco uppfylltu draum hins fimm ára gamla Miles Scott á dögunum en Miles hefur lengi langað til að vera leðurblökumaðurinn. Miles greindist með hvítblæði 18 mánaða gamall og hefur eytt mestum hluta ævi sinnar á sjúkrahúsum.

Samtökin Make-a-wish stóðu fyrir því að láta draum Miles rætast og um það bil 13.000 íbúar San Fransisco létu ekki sitt eftir liggja. Miles ók um á sérhönnuðum Lamborghini, bjargaði dömum úr háska og handsamaði bankaræningja þennan eftirminnilega dag meðan íbúar San Fransisco hvöttu hetjuna ungu áfram á götum úti.

San Francisco Helps Miles' Wish To Be A Superhero Come True!

Dagblaðið San Fransisco Chronicle gaf út sérrit í tilefni af þessum atburði og Leðurblökustrákurinn var í kvöldfréttum helstu sjónvarpsstöðva þann daginn. Samhugur í verki og ógleymanlegur dagur í lífi ungs drengs.

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283