Mér finnst yndislegt að sjá hvað Íslendingar eru orðnir meðvitaðir um heilsu sína.
Það eru virkilega margir komnir með „heilsuæðið“ og farnir að gera eitthvað í sínum málum. Það er frábært!
Þegar ég var yngri þá var alls ekki í tísku að vera í íþróttafötum eða borða fræ.
Núna er það orðið eitt af því flottasta sem þú getur verið í og sett ofan í þig.
Virkilega skemmtileg og gleðjandi þróun.
Mér líður samt stundum eins og
ég sé með þetta allt á heilanum.
Hugsa endalaust um hvað ég set ofan í mig, hvað ég sé búin að hreyfa mig mikið og hvað ég get gert til að bæta mig!
Það eru endalausar auglýsingar, áróður, uppskriftabækur, heilsutilboð, áskoranir, boð og bönn í gangi! Stundum verður það þreytandi.
Við megum ekki gleyma að lifa lífinu! Því það er vel hægt að vera heilsusamlegur með öllu hinu sem okkur langar að gera!
Á sumrin þá breytist okkar eðlilega rútína. Við förum í sumarfrí, ferðalög og það eru alls konar uppákomur í gangi. Við höldum samt okkar striki en bara sveigjum það aðeins eftir aðstæðunum.
Það er ekki samasemmerki á milli þess að mæta ekki í líkamsræktarstöð og hreyfa sig ekki.
Þú getur hreyft þig á svo marga vegu, úti!
Það er ekki samasemmerki á milli þess að borða grillmat og vera óhollur.
Það er hægt að grilla virkilega hollan mat!
Og hver segir að maður megi ekki stundum bara sleppa því að hreyfa sig og borða óhollan mat?
Það að vera með heilsuna í þróun til hins betra á ekki að vera kvöð eða leiðinlegt.
Búum til skemmtilegan lífsstíl sem verður að hversdagsleika og eitthvað sem við þurfum ekki að taka okkur sumarfrí frá. Við getum samt alveg stundum leyft okkur að breyta út af vananum, er það ekki?
Höfum gaman, brosum og njótum lífsins!
Ráð mitt til þín!
Leikið við krakkana í útilegunni og sláið tvær flugur í einu höggi!
Farið í aktíva leiki og þá náið þið að hreyfa ykkur oft það mikið að það samsvarar góðri æfingu!