Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Mín skoðun

$
0
0

Fátt er jafn óaðlaðandi og fordómar. Kona sem tjáir í sífellu pirring út í kynsystur sínar sem eru af erlendu bergi brotnar. Karlmenn sem tala í sífellu niðrandi um kynbræður sína frá öðrum löndum, hörundsdökka menn sem dæmi. Rétt eins og fátt er eins óaðlaðandi eins og kona sem talar í sífellu niðrandi um karlmenn, annað hvort þegar þeir heyra ekki til eða bara karlmenn almennt. Menn sem tala illa um homma efast um eigin kynhneigð, verra; menn sem tala illa um lesbíur eru nú eiginlega illa þjáðir af óöryggi gagnvart maka sínum eða félaga. Sama á við um konur. Fólk sem tjáir sig á þennan hátt setur allar viðvörunarbjöllur í gang hjá manni.

Þeir sem ala á og tjá í sífellu niðrandi viðhorf til umhverfis síns ættu að hugleiða það að þetta þykir flestum ákaflega óaðlaðandi. Menn sem tala illa um einstæðar mæður og að þeir álíti þær síðri kost til sambúðar eða hjónabands. Konur sem hegða sér nákvæmlega eins, þær eru kannski ekki jafn rannsakað fyrirbæri en þær eru síst skárri.

Konur sem tala í sífellu um áhuga sinn á samböndum við menn sem gætu verið synir þeirra að aldri og karlmenn sem gera slíkt hið sama. Fátt er meira óaðlaðandi. Ekki svo að skilja að sá sem hér situr vilji á nokkurn hátt gera lítið úr eða fella neinn dóm yfir samböndum fólks á ólíkum aldri, langt í frá. En ef þú skynjar að einhver auðsjáanlega kjósi ekki sambönd yfirleitt við jafnaldra sína og sneiði kerfisbundið hjá nánu samneyti við mögulega jafnoka sína, þá er það tja, fremur annarleg hegðun.

Að lokum, tölum við illa um femínista, saman ber ‘þessir femínistar’ eða ‘þessar femínista-“"#$!“"$%’ ? Slíkt tal gefur af sér afar slæman þokka enda er það mjög hatursfullt. Við eigum öll mæður og dætur, systur, eiginkonur, sá sem ekki er femínisti hlýtur því að vera í mikilli afneitun og slík persóna hlýtur barasta að vera varasöm segi ég. Einhvernvegin virðast þessi neikvæðu viðhorf því miður haldast í hendur og fólk sé annað hvort laust við þau að mestu, eða; bara almennt kreddu og fordómafullt yfir borðið, á flestum sviðum.

Hver er rótin?; Er mögulega erfiðara að taka afstöðu til einnar konu en að tala bara illa um konur almennt ? Næsta spurning er þá eðlilega; Hvað ef að eina konan sem viðkomandi er ekki illa við er sambýlis eða eiginkonan, hver er veruleiki þeirrar konu, að hún búi með tímasprengju ?

Þekkir þú homma sem er bara fínn en almennt leiðast þér hommar ? Að taka afstöðu til innflytjenda ? Þeir sem tala gegn ímynduðum flaumi innflytjenda, fegra jafnan fordóma sína með því að segjast þekkja einn asskoti fínan innflytjanda ? Hvernig líður konu sem á maka sem talar illa eða niðrandi um konur almennt, hefur hún ástæðu til þess að halda að hún verði í náðinni til lengdar ?


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283