Ég hef haldið mörg námskeið og eitt er það sem undantekningalaust ber á góma, en það er blessaða kantlykkjan. Þú ert búin að vanda þvílíkt til verka en kanturinn eyðileggur allt og næstum því drepur niður gleðina sem fylgir því að skapa eitthvað sem annars væri svo fallegt.
Þetta er alveg sérstaklega áberandi þegar önnur hliðin er öll prjónuð slétt. Sumar lykkjur við kantinn eru svakalega þéttprjónaðar en svo kemur lykkjan í næstu umferð fyrir ofan, en hún er öll eitthvað svo losaraleg. Einhverra hluta vegna vill þetta vandamál oft verða meira áberandi vinstra megin.
Kannastu við það að reyna að prjóna fyrstu lykkjuna sjúklega fast og gefa garninu nánast engan slaka meðan þú prjónar hana? Þú reynir síðan að viðhalda strekkingunni í fyrstu lykkjunni meðan þú prjónar þá næstu. Síðan skilur þú ekkert í því að kanturinn verður samt ljótur þrátt fyrir góðan vilja.
En hefur þú hugsað um það hvað þú gerir næst? Ég skal segja þér það; þú heldur áfram að prjóna venjulega. Ekki satt?
Þar liggur einmitt vandinn. Málið er að slakinn liggur ekki í umferðinni sem þú ert að prjóna, heldur í umferðinni fyrir neðan! „Hvað meinar manneskjan?“ kanntu að hugsa núna. En andaðu nú djúpt elskuleg/ur og ég skal útskýra þetta betur.
Málið er að það er sama hversu mikið þú togar í garnið þá mun ekkert gerast. En af hverju gagnast það ekki úr því þú ert búin/nn að strekkja líftóruna úr garninu? Það er vegna þess að eins og ég bendi á fyrr í þessum pistli, að þá heldur þú áfram að prjóna sem fyrr um leið og þú byrjar á lykkju 2.
Við það slaknar á garninu og þar með á fyrstu lykkjunni. Athugaðu að það er aðeins ein lykkja sem er föst við kantlykkjuna og þess vegna er minna sem heldur henni og þrengir hana þar með.
En hvað er þá til ráða? Það er í rauninni ótrúlega einfalt um leið og þú fattar það. Það sem þú þarft að gera er að teygja á lykkjunni sem þú ert að prjóna í áður en þú vefur bandið um prjóninn og klárar lykkjuna. Opnaðu hana vel. Þetta gerir þú við næstu 3-4 lykkjurnar og þannig dreifist slakinn frá fyrstu lykkjunni yfir þær næstu sem á eftir koma.
Það er engin hætta á að prjónlesið verði eitthvað götótt og er ástæðan sú að búið er að skammta garnið í lykkjurnar í fyrri umferð, þú ert því aðeins að færa slakann til og jafna þetta út.
Prufaðu bara. Fitjaðu upp á 10-15 lykkjur og prjónaðu fram og til baka 4-6 umferðir eins og þú ert vön/vanur. Prufaðu nú að gera eins og ég leiðbeini hér fyrir ofan. Þú þarf ekki að prjóna margar lykkjur til að sjá hvað gerist. Gættu bara að því að teygja ekki of mikið á lykkjunum heldur. Þreifaðu þig bara áfram minn elskulegi prjónari. Þetta kemur allt með æfingunni.
Í næsta pistli ætla ég að tala meira um kantlykkjur, en þá ætla ég að fara í mismunandi tegundir og hvenær þau eru notuð. Kantlykkja er nefnilega ekki bara kantlykkja sjáðu til *blikkblikk*
Segðu mér í guðanna bænum frá því ef það er eitthvað sérstakt sem þú vilt ég taki fyrir hér í þessum pistlum. Ef þú ert í vandræðum með eitthvað, þá getur þú gengið út frá því að aðrir séu það líka. Aldrei að vita nema þú sért að gera prjónaheiminum greiða skilurðu.
Strekkiknús á línuna og mundu að kvitta.
Tína