Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Er ferðaþjónustan á villigötum?

$
0
0

Langar ykkur til að fara út úr bænum um helgina og bóka ykkur inn á hótel? Við leituðum að gistingu á laugardagskvöldið 5.júlí í eina nótt fyrir tvo. Við völdum að nota Expedia.com sem er ein vinsælasta og mest notaða bókunarsíða veraldar til að hjálpa okkur við leitina en þar er þessi tilboð á hótelgistingu að finna. Hvernig hljómar þetta, krakkar?

Hótel Lambafell býður ykkur gistingu á laugardagskvöld á aðeins 1,105 dollara og Gistihúsið Edinborg býður ykkur að gista fyrir 850 dollara fyrir eina nótt.

Screen Shot 2014-07-04 at 10.49.12 f.h.

Ef þið viljið getiði keypt ykkur nákvæmlega eins herbergi í Gistihúsinu Edinborg fyrir 888 dollara þó erfitt sé að skilja afhverju einhver myndi kjósa það. En það er í boði fyrir örláta.

Screen Shot 2014-07-04 at 12.08.52 e.h.

Hafirðu ekki ráð á því að gista á ofangreindum gististöðum þá er hægt að fara á Laugarvatn og gista á Golden Circle apartments fyrir aðeins 761 dollara í herbergi sem rúmar fjóra fullorðna. En kjósirðu minna herbergi á sama hóteli eða herbergi sem rúmar aðeins tvo fullorðna þá kostar nóttin 850 dollara. Ykkar er valið!

Screen Shot 2014-07-04 at 11.00.41 f.h.Ef þið sjáið ykkar óvænna vegna verðlags á hótelum og teljið ykkur ekki hafa ráð á því að keyra út úr bænum sökum bensínverðs en langar samt að gera ykkur glaðan dag og gista á hóteli – - leitið ekki langt yfir skammt!

Í Kópavoginum geturðu fengið gistingu fyrir tvo í stúdíóíbúð í Hamraborg 7 á hótelinu North Star Apartments fyrir 889 dollara. En athugið að þetta verð er aðeins fyrir eina nótt.

Screen Shot 2014-07-04 at 11.19.55 f.h.

Hverju sætir þetta háa verðlag? Er þetta álagning Expedia? Er hótelunum sem um ræðir ekki kunnugt um þessi auglýstu verð? Eru ofangreind herbergi á miklu lægra verði ef þú hringir í hótelin beint? Hvar liggur ábyrgð hótelanna sjálfra? Hvers eiga grandalausir ferðamenn að gjalda?

Þessum spurningum verður ekki svarað hér en víst er að grunlausir ferðalangar sem nýta sér þjónustu Expedia.com geta sannarlega átt á hættu að vera rúnir inn að skinni þegar kemur að því að bóka hótelgistingar á Íslandi.

Dagblaðið greinir í dag frá miður skemmtilegri reynslu ferðamanns sem rakti raunir sínar fyrir íslenskum leigubílstjóra en ferðamaðurinn hafði verið rukkaður um 115 þúsund krónur fyrir nótt á gistiheimili í Keflavík.

Svívirðilegt okur sem þetta er því miður engin skröksaga heldur blákaldur veruleiki.

Ljósmyndin, Got the hat, er eftir Pétur Gauta Valgeirsson af Flickr.com


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283