Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Stelpan fær trú á sjálfa sig

$
0
0

Við rákumst á lagið Everybody’s saying flutt af Önnu Hlín á Youtube. Anna Hlín er hálfur Serbi og hálfur Íslendingur en er alin upp á Íslandi. Við fengum hana í örstutt spjall og báðum hana um að segja okkur frá laginu.

905385_588497884599402_1509041647266871762_o

Anna Hlín:  Ég sendi þetta lag frá mér í byrjun apríl. Textinn er eftir mig og Brynju Sigurdardóttur ur Real Flavaz og tónlistin er samin af þýskum pródúsent sem  kallar sig Teka. Ég vinn mjög mikið með honum í reggae lögunum mínum. Myndbandið er gert af snillingunum í Silent, Tryggvagötu og Hands Up music / Sumthin Magnetic sjá um dreifingu.

Kvennablaðið: Um hvað fjallar lagið?

Anna Hlín: Lagið er um óörugga stelpu sem umbreytist í sterka konu og fær trú á sjálfa sig.

Kvennablaðið: Hvað ertu að fást við þessa dagana?

Anna Hlín: Ég er mikið að vinna í tónlist núna(eins og alltaf, hehe.) Ég á og rek mitt eigið tónlistarhús þar sem ég er með fullt af verkefnum í gangi ásamt því að vinna að minni eigin plötu og túra um Noreg en ég er búsett þar. Platan verður mjög lifandi, svona öðruvísi en ég hef sent frá mér hingað til, ég hef verið mikið i digital hljóðheiminum en er að færa mig yfir í live-sound, er samt enn með nokkur lög i electronica/hip hop/rnb stílnum sem verða á plötunni líka. Platan er væntanleg næsta ár.

Við hvetjum ykkur til að hlusta á lag Önnu Hlínar, Everybody’s saying. Sumarlegt og flott.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283