Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ég segi nei takk við erlendri knattspyrnu

$
0
0

Nú er þetta eiginlega komið gott. Það eru allir komnir með upp í kok af þessari heimsmeistarakeppni.

Hvert sem litið er, allstaðar blasa við manni einhverjir leikir og úrslit í þessum fíflagangi. Það er ekki eins og þetta sé spennandi íþrótt eins og til dæmis Bridge. Nú er stórt mót í gangi í tvímenning í Bridge í Svíþjóð á vegum Nordisk Bridge Union. Við fáum engar fréttir þaðan af því einfaldir menn sem hafa farið í of marga skallabolta skilja ekki lengur flóknari reglur en í knattspyrnu og íþróttafréttamenn reyna eingöngu að höfða til þessara einfeldninga.

En fyrst við höfum sætt okkur við að hunsa alvöru íþróttir og leggja áherslu á boltaleiki fyrir menn sem aldrei ætla að fullorðnast, af hverju erum við að horfa á útlendinga spila á móti sem við fáum ekki einu sinni að vera með á?

Við höfum hér á landi fullkomlega skemmtilega og spennandi íslenska knattspyrnu. Afhverju þarf að flytja hingað inn einhverja erlenda keppni í beina samkeppni við þá íslensku. Pepsídeildin er miklu nær okkur og þvílík gæðaknattspyrna! Þessir erlendu spjátrungar líta út eins og illa snyrtir og skelþunnir hestamenn á seinasta degi Landsmóts.

Svo eru þetta villimenn. Bítandi hvern annan.

Ég er bara alfarið andsnúinn öllum innflutningi á fótbolta á þeim forsendum að slíkt sé ávísun á heilsubrest þjóðarinnar. Segjum nei takk við þessari erlendu keppni sem kemur okkur ekki við.

Kannski virkar það sem ákveðin forræðishyggja en ég vil að við stöndum vörð um það sem við eigum, þegar að það er vottað bæði hérlendis og erlendis sem gæðavara.

Mynd: Safnasvæðið Akranesi


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283