Það er óhætt að segja að við búum vel hér á landi þegar kemur að slökkviliði og björgunarsveitum. Sérþjálfaðir slökkviliðsmenn og konur í hverri stöðu og samvinna lögreglu, slökkviliðs og björgunarsveita til fyrirmyndar þegar um eldsvoða er að ræða. Stórbruninn í Skeifunni 11 er þarna engin undantekning því á örskammri stundu voru allir viðbragðsaðilar komnir á staðinn og byrjaðir að vinna.
Upplýsandi yfirlitsmyndband tekið á dróna (e.drone) Garðar Þór Ingvarsson tók. Af Youtube
Allt tiltækt lið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út, næturvaktin líka, slökkvilið frá Reykjavíkurflugvelli, Suðurnesjum og Árnesi að auki og eru um 120 aðilar að berjast við að bjarga því sem bjargað verður til að forða megi frekara eignatjóni.
Hvernig undirbýr slökkviliðið sig?
Hér á þessu myndbandi eftir Valda Gunn má sjá slökkvilið höfuðborgarsvæðisins á leið í útkall.
Starf slökkviliðsmanna
Hér er svo frábær heimildarþáttur frá N4 á Akureyri. Þátturinn er góð innsýn inn í starf slökkviliðsins og þeirrar stöðugu þjálfunar sem þeir eru í, alltaf tilbúnir, allan sólahringinn, allt árið um kring.