Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Kæri Ekki-prjónari

$
0
0

Einu sinni kom kona til mín og eftir mikið spjall um prjón (en ekki hvað?), garn og ýmsu því tengdu þá barst talið að því hvað prjónarar væru í rauninni hrikalega fjölhæft fólk.

Hver kannast t.d ekki við að prjóna fyrir framan sjónvarpið? Svona, út úr skápnum með þig…ég veit þú hefur einhvern tímann að minnsta kosti reynt.

Þá mundi ég eftir samtali sem ég átti einu sinni við kunningja okkar hjóna. Sá umburðalyndi (maðurinn minn) þurfti til Reykjavíkur í aðgerð á hné og á meðan ég beið þá lenti ég á kjaftatörn við umræddan kunningja og barst talið að prjónaæði landans.

Greyið kvartaði sáran yfir því að konan hans væri líka farin að stunda þessa ótrúlegu iðju og að sér fyndist hún ekki veita honum neina athygli á meðan. Meira að segja væri konan svo óforskömmuð að prjóna og horfa samtímis á sjónvarpið. Að vísu viðurkenndi hann að hann hefði ekki hugmynd um af hverju hann tæki þetta svona nærri sér en staðreyndin væri engu að síður sú að hann gerði það.

Sá umburðalyndi hefur líka haft orð á því við mig, að hann hefði áhyggjur af því að ég ofreyndi mig, þar sem ég prjónaði öllum stundum. Ég gat ekki annað en hugsað um alla prjónarana þarna úti sem þekkja Ekki-Prjónara og þurfa að koma viðkomandi í skilning um nokkur atriði.

Hér er því bréf sem hægt er að láta Ekki-prjónara fá. Þú mátt gera copy-paste.

„Kæri Ekki-prjónari.

Hér eru nokkur atriði til þess ætluð að hjálpa þér að skilja prjónara.

Ég get prjónað, talað og hlustað. Að ég skuli horfa beint í augun á þér á meðan, þó ég sé að prjóna, ætti að vera vísbending um að þú hafir alla mína athygli (nema þegar ég að telja). Þetta flokkast sem fjölhæfni.

Ekki skipta um sjónvarpsstöð ef ég sit fyrir framan sjónvarpið með prjónana mína. Ég veit fullkomlega hvað er í gangi í spennuþættinum þó ég sé ekki að horfa á skjáinn og veit alveg hver myrti hvern ef út í það er farið.

Einu skiptin sem ég vil ekki tala við þig er þegar þú heyrir; „23, 24, 25, 26….“ Heyrir þú mig segja einhverjar tölur þá er það ótvírætt merki um að ég sé að telja. Truflir þú mig við þessar kringumstæður þá ber ég enga ábyrgð á gjörðum mínum, verðir þú þess valdandi að ég þurfi að telja þessar 376 lykkjur aftur. Trúðu mér að það verður ekki fallegt.

Þrátt fyrir að ég bölvi eins og sjómaður, hendi frá mér prjónadótinu í vegginn, hótandi öllu illu, jafnvel trampi á því þá hef ég virkilega gaman af því að prjóna. Þú mátt vera viss um að ég njóti þess. Mér finnst þetta skemmtilegt og hrikalega afslappandi.

Og úr því við erum komin út í þessa sálma…já þú mátt gefa mér meira garn. Ekki vaða í þeirri villu að þó svo ég eigi mikið af því að ég vilji þá ekki meira. Ég á mikið af því ég dýrka það. Ef þú heyrir mig tala um að ég eigi of mikið, þá er ég að ljúga. Meira garn er því ALLTAF góð gjöf. Ef úrvalið verður meira hjá mér en í garnbúðinni, þá skal ég hugsa málið.

Takk fyrir að taka þetta til athugunar. Ég mun líklega senda þér fleiri svona nytsamleg ráð eins og t.d „Af hverju heimilisþrif gera þig virkilega kynþokkafullan“.

P.s Aldrei að vita nema ég prjóni eitthvað á þig. Vertu því næs.“

Gott ráð í lokin

Slaki

Oft vill myndast slaki (einskonar trappa) á milli sokkaprjóna þegar prjónað er í hring. Mjög algengt er að sjá þá fólk herða líftóruna úr garninu þegar fyrsta lykkja á næsta prjón er prjónuð. Ef þú ert ein/nn af þeim þá ertu líklega búin/nn að komast að því að þetta bara virkar ekki. Lestu endilega áfram til að fá lausn á þessu. Nú ef þetta er ekki vandamál hjá þér, þá skaltu endilega lesa áfram. Þú gætir notað þessar aðferðir til að miðla áfram.

Til eru 2 aðferðir til að bjarga þessu.

1) Í stað þess að strekkja svona á garninu um leið og þú prjónar næstu lykkju, þá skaltu frekar hafa venjulegan slaka og teygja þess í stað vel á lykkjunni sem þú ert að stinga í gegnum um leið og þú prjónar hana. Gerðu þetta við næstu 3-4 lykkjur. Slakinn er nefnilega ekki í lykkjunni sem þú ert að prjóna heldur í umferðinni á undan. Skoðaðu þetta bara.

2) Hin aðferðin er að prjóna t.d 2 lykkjur af næsta prjóni áður en þú byrjar á nýjum prjón. Ég skal útskýra þetta aðeins betur. Segjum að það séu 10 lykkjur á hvern prjón (A.B.C og D). Þegar þú ert búin að prjóna 10 lykkjur á prjón A, þá skaltu prjóna 2 lykkjur til viðbótar (af prjón B). Prjónaðu síðan 8 lykkjur (ekki fleiri eftir) af prjón B, og svo 2 lykkjur til viðbótar af prjón C. Nú eru 10 lykkjur á prjón B. Þannig flytjast lykkjurnar alltaf til um 2. Þetta verður til þess að slakinn er ekki á sama stað 2 umferðir í röð.

Sniðugt ekki satt?

Mundu svo eftir því að kvitta hér í athugasemdakerfinu ef þú hefur gaman af pistlunum mínum.

Prjónakveðja,
Tína


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283