Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Íspinnar – bannaðir börnum!

$
0
0

Það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt og um daginn prófaði ég að búa til súkkulaði-og rauðvínsíspinna. Já, alveg satt!

Ég sá mynd af þessu á einhverju bloggi og lét slag standa. Í uppskriftinni þar var reyndar bara fryst saman mjólk, rauðvín og súkkulaðispænir sem hafði verið brætt saman en ég ákvað að prófa að gera svipað úr vanillu mjúkís frá Kjörís sem ég átti inni í frysti.

Screen Shot 2014-07-07 at 02.24.46 e.h.

Ég notaði hálfan l af vanilluís frá Kjörís

1 1/2 bolla af góðu rauðvíni sem ég átti til frá deginum áður.

1 mts. af góðu lífrænu kakói

Ég þeytti þetta allt saman í matvinnsluvél í smá stund og hellti í lítil íspinnaform og frysti í góðan sólarhring.

Útkoman var rosalega góð og þetta verður pottþétt gert aftur. Stórsniðugt til að nýta afgangsvín. Næst ætla ég að prófa að nota vanilluís og hvítvín kannski með ferskju- eða plómusultu. Möguleikarnir eru endalausir.

Njótið!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283