Það eru aldeilis góðar fréttir af UNA húðvörunum, fréttir sem ættu að gleðja alla þá sem umhugað er um útlitið og húðina. Nýjar rannsóknir sýna að vörur þeirra stórauka kollagenframleiðslu (Kollagen er byggingarefnið í húðinni) og hindra niðurbrot þess.
UNA skincare kremin eru framleidd af nýsköpunarfyrirtækinu Marinox og öll þróun og framleiðsla á sér stað hér á Íslandi. Vörurnar eru án litar-og ilmefna. Ekki eru notuð parabenefni og vörurnar eru ekki prófaðar á dýrum.
UNA húðvörurnar byggja á umfangsmiklum rannsóknum á lífefnum úr íslenskum sjávarþörungum. Eitt af þeim efnum er Marinox™ extrakt en extraktið inniheldur lífvirk efni sem hafa framúrskarandi andoxunarvirkni í frumum. Þau stórauka kollagenframleiðslu og hindra niðurbrot byggingarefna húðarinnar. Nýjustu rannsóknir á áhrifum Marinox™ extrakts á húðfrumur sýndu einstakar niðurstöður og sýna allt að tíföldun á framleiðslu kollagens.
Mælingar á áhrifum Marinox™ extrakts á húðfrumur sýndu að extraktið eykur framleiðslu kollagens margfalt. Mælingar hafa einnig sýnt að extraktið dregur úr framleiðslu Matrix Metallopróteasa í húðfrumum. Þetta eru ensím sem brjóta niður mikilvæg byggingarefni í húðinni og valda öldrunareinkennum. Minni framleiðsla MMP ensíma styrkir því byggingu húðarinnar.
-Afburða andoxunarvirkni
-Stórauka kollagen framleiðslu í húðfrumum
-Margfalt minna niðurbrot mikilvægra byggingarefna í húðinni.
Una Skincare ætlar að gefa nokkrum heppnum lesendum Kvennablaðsins nýjustu vöruna úr glæsilegri línu sinni en það er UNA skincare marine bioactive ultra rich eye cream sem er nýjasta varan í vörulínu UNA skincare.
Húðin í kringum augun er afar þunn og þynnist með aldrinum og er því eitt viðkvæmasta húðsvæðið. Með aldrinum og með ytra áreiti s.s. sólargeislum og mengun þá veikist byggingarefni húðarinnar og það dregur úr framleiðslu mikilvægra efna sem veldur að húðin verður slappari og fínar línur og hrukkur fara að myndast.
Kvennablaðið mun kynna UNA húðvörur og Facebookleikinn á Facebook Kvennablaðsins og fylgist því endilega vel með.
Kostuð kynning